Samtal um sjálfbærni og tækniþróun
10. apríl 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forsetahjón heimsækja menntastofnanir, félagsmiðstöð og leikhús á Akureyri.

Forseti flytur opnunarávarp á Sjöttu sjálfbærniráðstefnunnar í fyrirlestrarsal Háskólans á Akureyri.




Forsetahjón heimsóttu tvær menntastofnanir, félagsmiðstöð og leikhús í dagslangri ferð sinni til Akureyrar. Kveikja ferðarinnar var Sjötta sjálfbærniráðstefnan sem fer fram í Háskólanum á Akureyri (HA). Eftir að hafa flutt ávarp og hlýtt á opnunarfyrirlestur ráðstefnunnar tók forseti þátt í sófaspjalli um framtíð háskólamenntunar á Landsþingi Landssamtaka íslenskra stúdenta sem einnig er haldið í HA nú um helgina. Í hádeginu snæddu forsetahjón með gestum og starfsfólki Birtu - félagsmiðstövar fólksins við Bugðusíðu en þaðan lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri (MA) þar sem forseti ræddi við nemendur á sal.
Í ávarpi sínu á sjálfbærniráðstefnunni, sem Umhverfisráð HA skipuleggur, sagði forseti að áskoranir á sviði umhverfismála kölluðu á fleira en vísindalega þekkingu og tæknilegar lausnir. Hún lagði áherslu á að mannkynið þyrfti nú, líkt og jafnan þegar blikur væru á lofti, á hugrekki að halda en einnig seiglu, trú á framtíðina og þakklæti fyrir þau tækifæri sem núlifandi kynslóðir hefðu til að framkalla breytingar.
Seiglu bar einnig á góma í sófaspjalli forseta við Aðalbjörn Jóhannsson, forseta Stúdendafélags HA, og Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta LSÍ. Þau ræddu um áhrif gervigreindar á háskólamenntun og framtíðarstarfsvettvang ungs fólks. Forseti sagði að sú kynslóð sem nú væri í háskólanámi þyrfti að búa sig undir að uppfæra menntun sína og starfshæfni með reglulegu millibili. Dýrmætasta veganestið sem þau fengju út í lífið væru seigla, sveigjanleiki og samskiptahæfni.
Birna Guðrún Baldursdóttir, forstöðumaður tómstundamála hjá Akureyrarbæ, tók á móti forsetahjónum í félagsmiðstöðinni Birtu. Þau hittu þar meðal annars vaska snókerspilara og pílukastara sem hvöttu Björn Skúlason, maka forseta, til að spreyta sig. Einnig heilsuðu forsetahjón upp á gesti sem nýta aðstöðu í Birtu til að sinna handavinnu og leirkeragerð.
Áður en samtalið á sal MA hófst sæmdi Karl Frímannsson skólameistari forseta gulluglu, sem er æðasta heiðursmerki skólans. Fyrsti einstaklingurinn til að hljóta þennan heiður var Kristján Eldjárn, þáverandi forseti Íslands, árið 1980. Í sófaspjalli forseta við Elvar Björn Ólafsson, nemanda á raungreina- og tæknibraut MA, beindist athyglin að þeim neikvæðu áhrifum sem samfélagsmiðlar geta haft á líðan almennings. Forseti hvatti til þess að ungt fólk setti sér mörk í notkun snjalltækja. Einnig ræddu þau Elvar Björn um gildi góðvildar og mikilvægi beinna samskipta manna á milli.
Forsetahjón luku deginum á því að sjá uppfærslu Leikfélags Akureyrar á Birtíngi Voltaires í leikgerð og leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar.
Fleiri fréttir

9. apríl 2026
Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar
Forseti hvetur til samtals og stefnumörkunar.
9. apríl 2026
Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar

29. mars 2026
Snorri Dagur hlýtur Ásgeirsbikarinn
Forseti afhendir forsetabikar fyrir sundafrek.
29. mars 2026
Snorri Dagur hlýtur Ásgeirsbikarinn

26. mars 2026
Forseti Slóveníu heimsækir Ísland
Halla Tómasdóttir og Nataša Pirc Musar ræða um velsæld í Veröld.
26. mars 2026
Forseti Slóveníu heimsækir Ísland