Samtal við Sigfús
8. mars 2025
Forseti flytur ávarp og opnar ljósmyndasýningu.








Forseti flytur ávarp og opnar ljósmyndasýninguna „Samtal við Sigfús – Í fótspor Sigfúsar Eymundssonar“ í Þjóðminjasafninu. Að sýningunni stendur Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, sem tekur verk þessa frumherja íslenskrar ljósmyndunar og myndar frá sömu stöðum og hann gerði á 19.öld, eða nýtir sér þau hughrif sem staðurinn skapar.
Sýningin samanstendur af úrvali þessara samtalsverka Sigfúsar og Einars Fals, að hluta ný prent eftir glerplötum eldri ljósmyndarans en einnig valin frumprent frá 19. öld, þegar myndirnar voru teknar. Um er að ræða fágæta dýrgripi í eigu Ljósmyndasafns Íslands sem afar sjaldan sjást.
Samhliða sýningunni gefur Þjóðminjasafnið út bókina Aftur – Samtal við Sigfús, með rúmlega 130 ljósmyndum og texta eftir Einar Fal.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar