Samúðaðkveðja til Spánar
1. nóvember 2024
Forseti sendir Spánarkonungi samúðarbréf.

Forseti sendir Filippusi VI. Spánarkonungi samúðarkveðju vegna hamfaraflóða í Valensía-héraði í suðausturhluta Spánar sem orðið hafa hátt á annað hundrað manns að fjörtjóni. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu vegna flóðanna sem sögð eru þau mestu á Spáni í áratugi.
Í bréfinu vottar forseti Spánverjum samúð og segir hug íslensku þjóðarinnar vera hjá aðstandendum hinna látnu og öðrum sem eigi um sárt að binda. Fjöldi Íslendinga sé búsettur á Spáni og deili hinni miklu sorg með spænsku þjóðinni, eins og aðrir Íslendingar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar