Samúðarkveðja til Eistlands
10. janúar 2025
Forseti vottar Eistum samúð vegna fráfalls fyrrverandi forseta Eistl...


Forseti sendir samúðarkveðju til Alar Karis, forseta Eistlands, vegna fráfalls fyrrverandi forseta landsins, Arnold Rüütel, sem borinn verður til grafar við ríkisútför á morgun. Rüütel, sem fæddist árið 1928, var forseti lýðveldisins Eistlands á árunum 2001-2006.
Í bréfi forseta segir að Arnolds Rüütels verði minnst fyrir atbeina hans að endurheimtu sjálfstæði Eistlands undan hernámi Sovétríkjanna. Íslendingar hafi sem smáþjóð tengt sterklega við sjálfstæðisbaráttu eistnesku þjóðarinnar og alið þá von í brjósti að Eistar gætu að nýju notið fulls frelsis meðal fullvalda þjóða.
Þá minnist forseti þess að Rüütel og eiginkona hans Ingrid komu í opinbera heimsókn til Íslands í forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar, árið 2004, og heimsóttu þá meðal annars hjarta lands og þjóðar á Þingvöllum.
Í bréfinu vottar forseti Eistum samúð fyrir hönd Íslendinga og biður fyrir kveðjur til aðstandenda Rüütels og eistnesku þjóðarinnar allrar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar