Samvera og tengsl
28. nóvember 2025
Forseti veitir viðurkenningar Forvarnardagsins.

Forseti ásamt verðlaunahöfum úr Gerðaskóla. Ljósmynd: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.

Forseti afhenti viðurkenningar í verðlaunasamkeppni Forvarnardagsins við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Keppnin fólst í gerð kynningarefnis sem tengdist þema Forvarnardagsins, sem í ár var „Samvera – að tilheyra – tengsl“.
Í flokki grunnskólanema hlutu verðlaun þeir Arnar Hannesson, Alexander Valur B. Garðarsson, Andri Fannar Andrésson og Ómar Andri Kristjánsson fyrir veggspjaldið „Ekki eyða tíma í síma“. Þeir eru allir nemendur í Gerðaskóla í Garði í Suðurnesjabæ.
Í flokki framhaldsskólanema komu verðlaunin í hlut Daníels Snæs Lund, Gunnars Hólm Guðmundssonar og Heimis Arnar Karolínusonar fyrir texta lagsins „Við getum skapað samfélag þar sem skjárinn þjónar okkur, ekki við honum.“ Þeir þremenningar eru nemendur í Framhaldsskólanum á Húsavík.
Fleiri fréttir

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“