Samverustund í Grindavík
10. nóvember 2024
Forseti flytur ávarp og sækir samverustund.

Forseti ávarpar Grindvíkinga á samverustund, ári eftir að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson









Forsetahjón sækja samverustund í Grindavíkurkirkju þar sem forseti flytur ávarp í tilefni af því að eitt ár er liðið frá því að rýma þurfti bæinn vegna eldsumbrota.
Í ávarpi sínu sagði forseti að enginn, sem ekki hefði gengið gegnum slíkar hamfarir, gæti sett sig í spor Grindvíkinga. Þakkarvert væri að Íslendingar stæðu saman og réttu hver öðrum hjálparhönd þegar slíkar hamfarir ættu sér stað.
Forseti sagði Grindvíkinga hafa sýnt mikið úthald og seiglu. Þá vék hún að því hve aðdáunarvert sé að Grindvíkingum hafi tekist að halda í samfélagsandann, þrátt fyrir að hafa misst heimili sín.
Trú á öflugu samfélagi
„Ég hef ekki, frekar en þið, svör við því hversu lengi móðir náttúra ætlar að herja hér á okkur, né svör við því hvernig skal bregðast við þeim fjölda áskorana sem fylgja hennar háttalagi. En ég hef trú, bæði á ykkur og á okkar öfluga samfélagi, og vil að lokum hvetja ykkur og öll sem að málum koma til að setja á oddinn að vinna saman að framtíðarsýn fyrir ykkar samfélag. Ekkert vekur meiri von og kraft í brjósti en að fá sæti við borðið þegar erfiðleikar steðja að – móta þannig skref fyrir skref þá framtíð og það samfélag sem þið viljið,“ sagði forseti í ávarpi sínu, sem lesa má í fullri lengd hér.
Auk forseta fluttu ávörp þau Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur og Ólafur Ólafsson, fyrirliði meistaraflokks karla í körfuknattleik. Kirkjukór Grindavíkurkirkju og Kristján Hrannar Pálsson organisti fluttu tónlist. Athöfnin var sýnd í beinu streymi sem sjá má hér.
Sjá myndasafn frá samverustund Grindvíkinga.
Pistill forseta: Einstök samverustund í Grindavík.
Fleiri fréttir

23. apríl 2026
„Framtíðin kallar á þekkingu ykkar, hugrekki og útsjónarsemi“
Forseti flytur setningarávarp á Skeifudeginum.
23. apríl 2026
„Framtíðin kallar á þekkingu ykkar, hugrekki og útsjónarsemi“

21. apríl 2026
Gervigreind til góðs
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.
21. apríl 2026
Gervigreind til góðs

20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.
20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“