Síðari dagur ríkisheimsóknar
8. október 2025
Forsetahjón bjóða til gagnkvæmnismóttöku.





Á síðari degi ríkisheimsóknar forseta Íslands og maka til Finnlands heimsóttu þau meðal annars Aalto-háskóla í Espoo og Arkitekta- og hönnunarsafnið í Helsinki. Heimsókninni lauk formlega í gærkvöldi með gagnkvæmnismóttöku. Forseti ávarpaði þar gesti og þakkaði finnsku forsetahjónunum og finnsku þjóðinni fyrir einstaka gestrisni og dýrmæta vináttu.
Dagurinn hófst á því að forsetahjón og fylgdarlið fóru í Hietaniemi-kirkjugarðinn í Helsinki þar sem er þjóðargrafreitur finnsku þjóðarinnar. Forseti lagði þar blómsveiga við minnismerki um fallna hermenn og við gröf Carls Mannerheim hershöfðingja sem var forseti Finnlands á árunum 1944 til 1946. Því næst voru höfuðstöðvar tæknifyrirtækisins Nokia í Espoo skoðaðar en þar tóku forseti Íslands og forseti Finnlands, Alexander Stubb, þátt í dagskrá finnsk-íslensks viðskiptaþings. Í kjölfarið heimsóttu íslensku og finnsku forsetahjónin skólabúðirnar Yrityskylä, JA Finnland þar sem nemendur úr 6. og 9. bekk fá tækifæri til að setja sig í hlutverk ólíkra starfsstétta. Ellefu slíkar skólabúðir eru starfræktar í Finnlandi og taka þær árlega á móti yfir 90% grunnskólabarna í þessum árgöngum.
Forsetahjónin þáðu því næst hádegisverð í boði borgarstjóra Espoo, Kai Mykkänen. Í samræðum yfir borðum kom fram að Espoo hefði nýlega skilgreint sig sem höfuðborg barna og ungs fólks enda væri rík áhersla þar lögð á að hlúa að yngstu aldurshópunum. Eftir hádegi var fyrst á dagskrá heimsókn í Aalto-háskólann en hann er þekktur fyrir þverfaglegt skólastarf og metnað á sviði tækniþróunar og umhverfismála. Halla Tómasdóttir og Alexander Stubb ræddu þar við unga háskólanema um leiðtogahlutverkið á tímum óvissu. Umræðunum stjórnaði Ilkka Niemela, rektor háskólans.
Síðdegis skoðuðu forsetahjónin Arkitekta- og hönnunarsafnið í Helsinki en þar er m.a. sýning helguð verkum finnska skáldsins Tove Jansson, höfundar sagnanna um Múmínálfana. Einnig voru kynntar fyrir gestunum niðurstöður í samkeppni um nýja byggingu safnsins. Að svo búnu var komið að kveðjustund fyrir forseta Finnlands, Alexander Stubb, en hann var á leið vestur um haf til fundar við Bandaríkjaforseta.
Lokaviðburður ríkisheimsóknarinnar var gagnkvæmnismóttakan sem haldin var á veitingastaðnum Katajanokan Kasinu. Móttökuna sóttu á þriðja hundrað gesta, þar á meðal eiginkona Finnlandsforseta, Suzanne Innes-Stubb, og finnskir og íslenskir þátttakendur af viðskiptaþinginu. Í móttökunni var boðið upp á íslenskar kræsingar, sem feðgarnir Hafliði Halldórsson og Halldór Hafliðason höfðu matreitt, auk þess sem GDRN og Reynir Snær Magnússon skemmtu með tónlistarflutningi.
Í ávarpi sínu rifjaði forseti m.a. upp fyrstu heimsókn sína sem unglingur til Finnlands, á kóramót í Rovaniemi í Lapplandi, og dýrmæt kynni sín og fjölskyldunnar af verkum Tove Jansson. Hún ræddi líka um líf og líðan barna og unglinga og lagði áherslu á að þótt Finnar og Íslendingar hefðu náð góðum árangri á ýmsum sviðum væri brýnt fyrir báðar þjóðir að hlúa enn betur að þessum aldurshópi á tímum snjalltækja og samfélagsmiðla.
Ávarpið í heild sinni er hægt að lesa á íslensku og á ensku á vef embættisins. Sjá einnig myndasafn frá Finnlandsheimsókninni.
Fleiri fréttir

25. febrúar 2026
Nýr vefur opnaður
Hönnun í höndum stafrænu stofunnar Júní
25. febrúar 2026
Nýr vefur opnaður

21. febrúar 2026
„Þýðendur eru brúarsmiðir“
Forseti afhendir Íslensku þýðingarverðlaunin
21. febrúar 2026
„Þýðendur eru brúarsmiðir“

20. febrúar 2026
Sigríður Björk og Jón Karl boðin velkomin
Ráðið í tvö störf hjá embætti forseta
20. febrúar 2026
Sigríður Björk og Jón Karl boðin velkomin