Síðari dagur ríkisheimsóknar í Danmörku
9. október 2024
Forsetahjón heimsækja Danmörku.

Forsetahjón ásamt konungshjónunum í móttöku við Norðurbryggju í lok tveggja daga ríkisheimsóknar til Danmerkur. Ljósmynd: Ritzau Scanpix



Forsetahjón halda áfram opinberri heimsókn sinni til Danmerkur. Á síðari degi heimsóknarinnar var megináhersla dagskrárinnar á eflingu núverandi viðskiptatengsla Danmerkur og Íslands, aukið samstarf um orkumál og sameiginlega hagsmuni við að mæta loftslags- og sjálfbærnimarkmiðum þjóða.
Um fyrri dag heimsóknarinnar má lesa hér: Konunglegar móttökur
Sjá einnig myndasafn: Ríkisheimsókn til Danmerkur
Viðskiptaþing, háskólanemar og hringborðsumræður
Síðari heimsóknardagurinn hófst með heimsókn til State of Green og Dansk Industri, systurfélaga Grænvangs og Samtaka iðnaðarins á Íslandi. Þar var efnt til Dansk-íslensks viðskiptaþings þar sem fjallað var um tækifæri til frekara samstarfs þjóðanna sem báðar standa framarlega við nýtingu endurnýjanlegrar orku og nýsköpunar á sviði loftslagslausna. Forseti og Danakonungur ávörpuðu bæði þingið og greindi forseti frá því að hún hefði tekið að sér hlutverk verndara Grænvangs.
Næst á dagskrá miðvikudagsins var heimsókn forsetahjóna í danska viðskiptaháskólann, Copenhagen Business School (CBS). Á annað hundrað Íslendinga er við nám í skólanum, auk þess sem þar starfa íslenskir fræðimenn sem forsetahjón hittu að máli. Þá var efnt til viðburðar fyrir nemendur skólans, þar sem dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, flutti erindi. Að því loknu átti forseti opið samtal við rektor CBS, Peter Møllgard, og svaraði spurningum nemenda úr sal.
Síðdegis var konungi og forseta boðið í sendiherrabústað Íslands í Kaupmannahöfn þar sem þau tóku þátt í hringborðsumræðum um orku-og loftslagsmál með fulltrúum úr íslensku og dönsku viðskiptalífi auk utanríkisráðherra Íslands og borgar- og sveitastjórnarráðherra Danmerkur sem jafnframt er ráðherra norræns samstarfs.
Móttaka til heiðurs konungshjónum
Seint síðdegis buðu forsetahjón til móttöku á Norðurbryggju til heiðurs dönsku konungshjónunum. Í móttökunni reiddi íslenska kokkalandsliðið fram smárétti úr íslensku hráefni auk þess sem boðið var upp á íslenskan bjór frá Ölgerðinni. Sigurður Flosason tónlistarmaður lék tónlist og Ari Eldjárn grínisti skemmti gestum. Með móttökunni lauk formlegri dagskrá ríkisheimsóknarinnar.
Fleiri fréttir

25. júní 2026
Kveðjustund í Þórshöfn
Lokadagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.
25. júní 2026
Kveðjustund í Þórshöfn

24. júní 2026
Fjölbreyttir viðkomustaðir á Austurey og Borðey
Annar dagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.
24. júní 2026
Fjölbreyttir viðkomustaðir á Austurey og Borðey

22. júní 2026
Hlýjar móttökur í Færeyjum
Fyrsti dagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.
22. júní 2026
Hlýjar móttökur í Færeyjum