Sigurður Reynir og Grímur heiðraðir
19. febrúar 2026
Ljósmyndir: EFÍ.
Forseti afhendir verðlaun úr sjóði Ásu Wright.

Sigurður Reynir Gíslason, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, og Grímur Sæmundsen, stofnandi Bláa lónsins.

Forseti afhenti heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunahafar voru Sigurður Reynir Gíslason og Grímur Sæmundsen.
Heiðursverðlaunin eru veitt árlega í tveimur flokkum. Annars vegar hlýtur þau íslenskur vísindamaður sem hefur náð framúrskarandi árangri á sínu sérsviði og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku samfélagi. Hins vegar eru verðlaunin veitt til frumkvöðuls sem hefur skarað fram úr í nýsköpun.
Sigurður Reynir, sem er rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, fékk heiðursverðlaunin fyrir rannsóknir sínar á kolefnishringrás jarðar, bindingu kolefnis í bergi og áhrif eldgosa á loft, vatn og lífríki. Hann hefur gegnt lykilhlutverki í þróun og framgangi CarbFix-verkefnisins sem vakið hefur alþjóðlega athygli en einnig sent frá sér bækur um sérsvið sitt og birt fjölda vísindagreina.
Grímur Sæmundsen er menntaður læknir og hefur á starfsferli sínum unnið að mörgum nýsköpunarverkefnum á heilbrigðissviði. Hann leiddi uppbyggingu Bláa lónsins hf. frá stofnun árið 1992 en það varð á skömmum tíma eitt helsta aðdráttarafl erlendra ferðamanna á Íslandi.
Í ávarpi sínu ræddi forseti meðal annars um Ásu Guðmundsdóttur Wright sem fædd er í Árnessýslu, flutti ung til Englands og lærði þar hjúkrun en bjó síðar á búgarði í frumskógi í Trínidad. Eftir að Ása varð ekkja stofnaði hún þar náttúruverndarsvæði sem ber nafn hennar. Verðlaunasjóðinn stofnaði Ása árið 1968 í tengslum við hálfrar aldar afmæli Vísindafélags Íslendinga. Forseti sagði meðal annars í ávarpinu:
„Í frásögnum af Ásu birtist okkur manneskja sem lét ekki krefjandi aðstæður stöðva sig. Hún brást við af kjarki og útsjónarsemi þegar á reyndi, leitaði lausna þar sem aðrir sáu hindranir og lét verkin tala. Ása sagði sjálf: „Það er skrítið að því lengur sem ég lifi, því meiri Íslendingur verð ég.“ Við þessi orð tengi ég af öllu hjarta því í þeim felst dýrmæt áminning. Þótt Ása lifði og starfaði lengi erlendis bar hún Ísland ávallt með sér – í gildum sínum, vinnusemi og festu. Hún var sögð stórhuga skörungur, einörð og ákveðin en jafnframt hlý og réttsýn. Sú blanda styrks og mennsku sem einkenndi hana er einmitt kjarni góðrar forystu, ekki síst í vísindum, nýsköpun og samfélagsþróun.”
Nánari upplýsingar um verðlaunahafana og verðlaunasjóðinn eru á vef Háskóla Íslands.
Fleiri fréttir

25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland
Forsetahjón taka þátt í Bræðslunni og Flugi og fákum.
25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland

24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu Norðurþings 2026.
24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum

23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.
23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland