Símasáttmáli barna
4. desember 2025
Forseti hittir fulltrúa Barnaþings.

Forseti ásamt fulltrúum af Barnaþingi og starfsfólki á skrifstofu Umboðsmanns barna. Ljósmynd: EFÍ.
Forseti tók á móti tólf fulltrúum Barnaþings 2025 sem skrifstofa umboðsmanns barna efndi til 20. og 21. nóvember. Þingfulltrúarnir færðu forseta „Símasáttmála barna“ sem samþykktur var á þinginu.
Barnaþing var nú haldið í fjórða skipti og fengu 350 börn á aldrinum 11 til 15 ára boð um að sækja það. Börnin voru valin með slembivali úr Þjóðskrá en um 130 börn skráðu sig til leiks. Markmið þingsins er að efla lýðræðislega þátttöku barna og virkja þau í umræðu um málefni sem snerta þau. Athygli beindist að réttindum og líðan barna og höfðu þinggestir tækifæri til að tjá skoðanir sínar og eiga samtal við fullorðna um ýmis viðfangsefni.
Á þinginu voru mótaðar tillögur um hvernig Ísland gæti orðið betra samfélag fyrir börn og er „Símasáttmáli barna“ hluti af afrakstri þeirrar vinnu. Sáttmálinn er svohljóðandi:
- Foreldrar eiga að vera góðar fyrirmyndir.
- Engir símar við matarborðið.
- Skýrar reglur um notkun síma í skólum.
- 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðla.
- Tölum meira saman og verum minna í símanum.
- Komum vel fram við aðra í samskiptum á netinu.
- Verum meðvituð um öruggi okkar og annarra á netinu.
Forseti þakkaði þingfulltrúum fyrir gott starf og ræddi við hópinn um símasiði, áhrif gervigreindar á nám og mikilvægi félagslegra tengsla.
Þess má geta að í tengslum við Barnaþing sátu forseti og forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, fyrir svörum í Kastljósi á Alþjóðadegi barna 20. nóvember. Spyrlar voru Þórey María Kolbeinsdóttir og Sigtryggur Máni Guðmundsson.
Fleiri fréttir

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“

6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind
Vinnuferð forseta til Genf í Sviss.
6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind