Skógrækt og mannrækt
29. ágúst 2025
Forseti ávarpar aðalfund Skógræktarfélags Íslands.

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands fer fram í Félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í Borgarfirði dagana 29. til 31. ágúst. Forseti ávarpaði fundinn á fyrsta degi og gróðursetti einnig tré í skógræktarreit á staðnum. Í ávarpi sínu ræddi hún meðal annars um tengsl skógræktar og mannræktar og hvatti til samstillts átaks á því sviði, til að mynda undir merkjum víxlyrkju. „Markmiðið er að þúsundir hjartna og þúsundir plantna komi saman, næstu kynslóð og heiminum til heilla. Átakið væri ekki aðeins liður í að ná Bonn-markmiðunum heldur minna okkur sjálf og aðra á hvernig heilsa fólks og velsæld jarðarinnar eru tengd órjúfanlegum böndum. ... Lykilatriði er að ná til þeirra kynslóða sem verja nú lengri tíma í stafrænum hliðarheimum en úti undir beru lofti.“
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar