Skólaverkefni um forseta lýðveldisins
8. maí 2026
Ljósmyndir: Birgir Ísleifur og EFÍ.
Forseti hittir nemendur í Klébergsskóla og opnar kennsluvef.

Nemendur sjötta og sjöunda bekkjar Klébergsskóla kynna verkefni sín um forseta lýðveldisins.

Froskaleikurinn - Skólameistarinn er ókeypis veflausn fyrir alla sem eru að læra íslensku og undirbúa læsi.
Sjá nánar.
Forseti heimsótti nemendur sjötta og sjöunda bekkjar Klébergsskóla sem hafa verið að læra um alla forseta lýðveldisins og vinna verkefni um þá. Forseti fylgdist með kynningum á verkefnunum og blandaði geði við nemendahópinn. Kvaðst forseti bæði stolt og snortin af hugrekkinu og gleðinni sem fyllti salinn.
Við sama tækifæri tók forseti þátt í opnun nýrrar útgáfu Froskaleiksins - Skólameistarans, kennsluvefs sem undirbýr og þjálfar læsi frá unga aldri með tengingu við málhljóð íslenskunnar. Um er að ræða verkefni sem Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur hefur leitt og þróað.
Í samtali sínu við nemendur vakti forseti athygli á því að froskurinn sem leikurinn er kenndur við missir rödd sína. Hún rifjaði upp að sjálf hefði hún lent í slíkum hremmingum þegar hún var í framboði og bætti síðar við: „Kannski er það einmitt það mikilvægasta sem við getum gefið börnum: gleðina við lestur, trú á eigin rödd og orð sem geta opnað heima.“
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
4. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“