Smáríkjafræði
15. ágúst 2024
Forseti tekur á móti háskólanemum og kennurum.

Forseti ræðir við nemendur og kennara við sumarskóla Rannsóknaseturs um smáríki. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir


Forseti tekur á móti nemendum við sumarskóla Rannsóknaseturs um smáríki, sem starfar undir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Sumarskólinn hefur verið haldinn frá árinu 2003 og koma nemendur víðsvegar að úr Evrópu til að læra um stöðu og áskoranir smáríkja í alþjóðakerfinu.
Í ár samanstendur hópurinn af 17 meistaranemum frá Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjum, Færeyjum og Grænlandi. Meginþemað að þessu sinni er öryggis- og varnarmál smáríkja í Norður-Atlantshafi (e. Small States and Current Security Challenges in the North Atlantic).
Forseti bauð hópinn velkominn til Íslands, svaraði spurningum þeirra og ræddi um vægi smáríkja í öryggis- og varnarmálum, ekki síst frá sjónarhóli kynja- og kynslóðajafnréttis og loftslagsmálum.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar