Snjalltæki og tengslarof
1. september 2025
Forseti efnir til samtals um símafrið.

Forseti boðaði til samtals á Bessastöðum með ungu fólki og ýmsum fagaðilum til að ræða áhrif snjalltækja- og samfélagsmiðla á líf og líðan barna og ungmenna, sem og uppalenda þeirra. Forseti hefur rætt opinberlega um þetta efni undanfarin misseri og sagði m.a. í ávarpi á Hólahátíð í ágúst:
„Athyglissamfélagið, eins og farið er að kalla þá þjóðfélagsgerð sem við búum nú við, hefur að mínu mati rænt okkur innri og ytri ró, aukið bilið milli kynslóða, rofið tengsl okkar hvert við annað og snertinguna við náttúruna í kringum okkur. Við leggjum jafnvel meiri rækt við skjáinn en velferð okkar sjálfra og nánustu ættingja.“
Meðal þess sem bar á góma meðal gesta voru símasiðir fullorðinna, stafrænn útivistartími, öryggishlutverk símtækja og þau tvíbentu áhrif sem boð og bönn geta haft ef ekki er hugað að jákvæðri og uppbyggilegri fræðslu. Ákveðið var að halda umræðum um efnið áfram og hvetja til frekara samstarfs á þessum vettvangi.
Fleiri fréttir

11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“
Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum.
11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“

7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.
7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“

6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.
6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“