Sólrík söngstund á Bessastöðum
31. ágúst 2026
Ljósmyndir: EFÍ og Sunna Ben/vísir.is.
Stiklur úr dagbók forseta.

Forseti ásamt Claudiu Goldin, Larry Katz og Stefan Wendt.




Forseti og frú Vigdís Finnbogadóttir hittust á frumsýningu í Háskólabíói í liðinni viku. Þá var tæpt ár liðið frá því að þær sáust síðast, þegar frú Vigdís sótti móttöku á Bessastöðum ásamt félögum í Norræna leikararáðinu.
Sjá nánar
Forseti tók á móti fjölbreyttum hópum gesta á Bessastöðum í liðinni viku. Þeirra á meðal var nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, konur frá Norður-Ameríku, Evrópu og Suður-Ameríku sem eru í fræðsluferð á Íslandi og fulltrúar norrænna félaga tónskálda og textahöfunda sem héldu árlegan samráðsfund hérlendis. Síðastnefndi hópurinn brast í söng í sólríkum móttökusalnum á Bessastöðum.
Þriðjudaginn 25. ágúst átti forseti kveðjufund með fráfarandi sendiherra Frakklands, Guillaume Bazard, en hann hefur starfað á Íslandi undanfarin fjögur ár. Bazard vakti meðal annars athygli íslenskra fjölmiðla þegar hann tók að sér aukahlutverk í sjónvarpsþáttunum um frú Vigdísi Finnbogadóttur sem frumsýndir voru á liðnu ári. Einnig hitti forseti bandarísku hagfræðingana Claudiu Goldin and Larry Katz sem voru hér á landi vegna ráðstefnu á vegum Háskólans í Reykjavík (HR). Bæði eru þau prófessorar við Harvard-háskóla. Í för með þeim var Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR. Goldin hlaut Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 2023 fyrir rannsóknir sínar á atvinnuþátttöku kvenna og var það efni ofarlega á baugi í samtali forseta við þremenningana.
Miðvikudaginn 26. ágúst tók forseti á móti 175 konum, flestum frá Norður-Ameríku en einnig frá Evrópu og Suður-Ameríku. Erindi þeirra til Íslands var að kynnast landi og þjóð, þar með talið nýsköpun, menningu, stöðu jafnréttismála og nýtingu Íslendinga á grænni orku. „Það var dýrmætt að heyra hversu djúpt Ísland hafði þegar snortið þær, fegurð náttúrunnar, vinsemd fólksins og krafturinn í samfélaginu höfðu veitt þeim innblástur,“ sagði forseti eftir þessa heimsókn. Seinna um daginn sá hópurinn heimildamyndina The Day Iceland Stood Still sem fjallar um kvennafrídaginn 1975. Tók forseti þátt í samræðum um myndina og efni hennar að sýningu lokinni.
Fimmtudaginn 27. ágúst tók forseti á móti tæplega 30 fulltrúum norrænna félaga tónskálda og textahöfunda. Þessi hópur hittist árlega og skiptast Norðurlöndin á að vera gestgjafar. Bragi Valdimar Skúlason formaður Félags tónskálda og textahöfunda og Jón Ólafsson framkvæmdastjóri kynntu hópinn fyrir forseta. Meðal þess sem bar á góma í umræðum hennar við gestina voru áhrif gervigreindar á listsköpun, ekki síst á tónsmíðar og textagerð. Undir lok móttökunnar settist Jón við flygilinn á Bessastöðum og lék undir fjöldasöng sem Védís Hervör Árnadóttir og Ragnheiður Gröndal leiddu.
Seinna þennan sama dag sótti forseti móttöku í Bandaríska sendiráðinu í tilefni af 250 ára sjálfstæðisafmæli Bandaríkjanna. Um kvöldið var hún viðstödd frumsýningu á heimildamyndinni Um tímann og vatnið sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar. Meðal annarra frumsýningargesta í Háskólabíói var frú Vigdís Finnbogadóttir og tók ljósmyndarinn Sunna Ben meðfylgjandi ljósmynd af forseta og frú Vigdísi við það tækifæri.
Föstudaginn 28. ágúst tók forseti á móti hópi norrænna viðskiptafræðinga sem eiga það sameiginlegt að hafa útskrifast úr spænska viðskiptaháskólanum Instituto y Empresa (IE). Þessi háskóli er virtur og vel þekktur, staðsettur í einum af turnunum fjórum (Cuatro Torres) í viðskiptahverfi Madrid-borgar. IE hefur ræktað góð tengsl við Norðurlönd og skipuleggur reglulega heimsóknir til þeirra. Í hópnum voru einnig fulltrúar núverandi nemenda og stjórnenda IE og Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands á Spáni.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk