Sterk staða kvennaboltans
16. ágúst 2025
Fundur fulltrúa knattspyrnusambanda.

Fulltrúar á árlegri ráðstefnu norrænna knattspyrnusambanda, sem fram fór í Reykjavík 15. og 16. ágúst, voru gestir forsetahjóna á Bessastöðum. Á ráðstefnunni eru rædd sameiginleg hagsmuna- og stefnumál sambandanna, alþjóðlegt samstarf og fleiri mál sem tengjast þessari vinsælu íþrótt. Þegar forseti ávarpaði hópinn ræddi hún m.a. sterka stöðu kvennaknattspyrnurnar og hversu mikið vatn hefði runnið til sjávar síðan hún lék sjálf knattspyrnu á malarvellinum í Kópavogi. Nú eru norrænu kvennaliðin iðulega á lista yfir þau 20 bestu í heiminum. Í samtölum við forystufólk hreyfingarinnar ræddi hún einnig um mikilvægi þess að bæði fullorðnir áhorfendur og börn fyndu til öryggis á knattspyrnuleikjum og hversu stolt hún væri af þeim jákvæða anda sem einkenndi stuðningsfólk íslensku landsliðanna.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar