Styrkara samband Finnlands og Íslands
7. október 2025
Fundir með forseta Finnlands, forsætisráðherra og þingmönnum.



Á fyrri degi ríkisheimsóknar sinnar til Finnlands átti forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fundi með Alexander Stubb, forseta Finnlands, Jussi Halla-aho, forseta Eduskunta – finnska þjóðþingsins, og Petteri Orpi, forsætisráðherra Finnlands. Einnig ræddu varnarmálaráðherra Finnlands og utanríkisráðherra Íslands saman og skrifuðu undir tvíhliða yfirlýsingu um nánara varnarsamstarf.
Fundur Höllu Tómasdóttur og Alexander Stubb í forsetahöllinni í Helsinki stóð yfir í um klukkustund. Fyrst ræddu þau einslega saman en síðan ásamt opinberum sendinefndum beggja landa. Meðal þess sem bar á góma voru margháttuð samskipti Finnlands og Íslands sem eiga sér langa og farsæla sögu en einnig samvinna þjóðanna á vettvangi Norðurlandaráðs. Málefni NATO og Norðurslóða voru rædd sérstaklega, sem og stuðningur beggja landa við Úkraínu. Einnig var fjallað um víðtæka samvinnu landanna á sviði menntunar og viðskipta, og líðan ungs fólks í löndunum tveimur.
Í kjölfar fundarins skrifuðu varnarmálaráðherra Finnlands, Antti Hakkanen, og utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, undir tvíhliða yfirlýsingu um varnarsamstarf en ráðherrarnir höfðu áður rætt saman um sameiginlega hagsmuni og áherslur landanna í utanríkismálum. Þá var haldinn blaðamannafundur þar sem forsetarnir sögðu fyrst nokkur orð og svöruðu síðan spurningum blaðamanna. Hér má sjá upptöku frá blaðamannafundinum.
Eftir hádegið var á dagskrá heimsókn í finnska þjóðþingið. Forseti þingsins, Jussi Halla-aho, tók á móti forseta Íslands og íslensku sendinefndinni. Hópnum var sýnt þinghúsið en síðan var fundað með fulltrúum þeirra flokka sem eiga sæti á finnska þinginu. Rætt var m.a. um góð samskipti þjóðþinga beggja landa, stöðu mála í Finnlandi og Íslandi og samskipti Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna. Einnig komu málefni ungs fólks til tals og þau áhrif sem falsfréttir og áróður geta haft á lýðræðisþróun.
Dagskrá eftirmiðdagsins lauk á fundi Höllu Tómasdóttur og Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, í embættisbústað þess síðarnefnda, Kesäranta. Þau ræddu fyrst einslega saman en síðan ásamt fulltrúum úr sendinefndum beggja landa. Rætt var m.a. um stöðu alþjóðamála á breiðum grundvelli í ljósi aukinnar spennu í alþjóðasamskiptum, minni tiltrú á alþjóðakerfið og skorti á virðingu fyrir alþjóðalögum. Dagskrá þessa fyrri dags ríkisheimsóknar forseta Íslands og maka til Finnlands lauk með kvöldverði í forsetahöllinni í boði forseta Finnlands og eiginkonu hans, Suzanne Innes-Stubb.
Sjá einnig myndasafn frá Finnlandsheimsókninni.
Fleiri fréttir

21. apríl 2026
Gervigreind til góðs
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.
21. apríl 2026
Gervigreind til góðs

20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.
20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“

16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar
Forseti og Jesper Brodin ræða leiðtogahæfni og gervigreind á Velsældarþingi.
16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar