Sviatlana Tsikhanouskaya
30. október 2024
Leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús.

Sviatlana Tsikhanouskaya ræðir við forseta á Staðastað. Ljósmynd: Yuli Shyshko


Forseti á fund með Sviatlönu Tsikhanouskayu, leiðtoga lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, á skrifstofu forseta við Staðastað í Reykjavík. Tsikhanouskaya er sérstakur gestur Norðurlandaráðsþings 2024 sem fram fer á Íslandi. Hún var ræðumaður á þinginu í dag og ræddi meðal annars um mikilvægi stuðnings norrænu landanna fyrir lýðræðisstarfið í Belarús.
Á fundinum með forseta var rætt um framtíðarhorfur Belarús, þróun mála og stöðu mannréttinda þar í landi frá því Aleksander Lúkasjenkó var lýstur sigurvegari í forsetakosningum þar árið 2020. Tsikhanouskaya hefur allar götur síðan leitt lýðræðishreyfinguna úr útlegð í Litháen og hafa Norðurlönd og Eystrasaltsríkin stutt kröfu lýðræðishreyfingarinnar um frjálsar kosningar.
Fundinn sátu einnig Francisak Viacorka og Dzianis Kuchynski, ráðgjafar Tsikhanouskayu, auk ráðgjafa forseta.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar