Tæknisetur
24. mars 2025
Forsetahjón heimsækja Tæknisetur.









Forsetahjón heimsækja Tæknisetur og kynna sér starfsemi rannsóknarstofnunarinnar og þeirra 32 nýsköpunarfyrirtækja sem þar starfa.
Tæknisetur er fyrirtæki sem býður upp á sérfræðiþekkingu og sérhæfða aðstöðu, tæki og búnað með það markmið að brúa bilið milli rannsóknarsamfélags og atvinnulífs.
Guðbjörg Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Tækniseturs, kynnti starfsemina, starfsaðstöðu og sérfræðinga á mörgum tæknisviðum. Forsetahjón skoðuðu rannsóknarstofu Tækniseturs þar sem fyrirtækið Arctus Aluminium framleiðir hágæða ál með óvirkum rafskautum sem ekki losar koltvísýring.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar