Táknmálsútgáfa af laginu „Riddari kærleikans“
13. nóvember 2025
Forseti hittir börn sem taka þátt í Táknmálseyjunni.

Forseti ásamt þátttakendum í Táknmálseyjunni og aðstandendum. Ljósmynd: EFÍ.
Forseti tók fyrr í þessum mánuði á móti um 20 börnum sem eru þátttakendur í verkefninu Táknmálseyja á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH). Við það tækifæri frumfluttu börnin táknmálsþýðingu lagsins „Riddari kærleikans“ og fimmtudaginn 13. nóvember var myndbandið af flutningi lagsins svo birt.
Táknmálseyjan er markvisst málörvunarverkefni fyrir táknmálsbörn á grunnskólaaldri sem SHH annast. Flest börnin eru með annað táknmál að móðurmáli en íslenskt táknmál (ÍTM) en eru að læra ÍTM. Fyrr á árinu veitti Barnamenningarsjóður Íslands SHH styrk til að vinna með börnunum í Táknmálseyju að myndbandi tengdu laginu „Riddari kærleikans“, eftir Dagmar Helgu Helgadóttur og Valgerði Rakel Rúnarsdóttur í flutningi GDRN. Eyrún Helga Aradóttir sviðsstjóri táknmálssviðs SHH og Uldis Ozols kennari í Táknmálseyju höfðu umsjón með vinnunni en Kolbrún Völkudóttir þýddi textann og sá um listræna útfærslu. Verkefnið var unnið í samstarfi við List fyrir alla.
Forseti Íslands hefur á liðnum misserum stutt við bakið á hreyfingunni Riddarar kærleikans en hún er leidd af ungu fólki sem vill vinna gegn vaxandi vanlíðan og ofbeldi með kærleika. Því þótti vel við hæfi að frumflutningur á táknmálsútgáfu lagsins „Riddari kærleikans“ færi fram á Bessastöðum. Í samtali forseta við aðstandendur Táknmálseyju kom fram að verkefnið hefði í senn fræðslugildi og listrænt gildi en eitt af markmiðum þess er að stuðla að fjölbreyttari þátttöku barnanna í samfélaginu.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“