„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
6. nóvember 2026
Ljósmyndir: Ívar Snæland og EFÍ:
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.

„Við megum aldrei gleyma því að þögnin getur verið sár,“ sagði forseti meðal annars í ávarpi sínu.



Á vef RÚV er hægt að hlýða á Kærleikslagið, sem Gísella Hannesdóttur samdi í tilefni af Degi gegn einelti árið 2026.
Skoða
Forseti tók þátt í dagskrá Dags gegn einelti sem fór að þessu sinni fram í Hlíðarskóla í Reykjavík. Hún flutti ávarp og afhenti hvatningarverðlaun fagráðs gegn einelti. Meðal annarra sem tóku til máls var Frosti Þorvaldsson, nemandi við Hlíðarskóla, en einnig sungu skólasystkini hans og Gísella Hannesdóttir „Kærleikslagið“ sem Gísella samdi í tilefni dagsins.
Dagur gegn einelti er alþjóðlegur viðburður sem er haldinn í nóvember ár hvert. Markmið hans er að efla umræðu, fræðslu og viðburði sem stuðla að jákvæðum samskiptum og vinna gegn einelti í skólum og samfélaginu. Í ávarpi sínu í Hlíðarskóla lagði forseti áherslu á að áhrif eineltis væru djúpstæð og gætu fylgt fólki alla ævi. „Og einelti bitnar ekki aðeins á þeim sem fyrir því verða,“ benti hún á. „Það eitrar andrúmsloftið í heilu bekkjunum, á vinnustöðum og í samfélögum.“ Síðar í ávarpi sínu sagði forseti:
„Ég lærði nokkuð óendanlega mikilvægt á ykkar aldri: Það þarf hugrekki til að standa með sjálfum sér, en það þarf líka hugrekki til að standa með öðrum og stundum þarf bara einn að stíga fram til þess að fleiri þori að fylgja á eftir.
Við megum aldrei gleyma því að þögnin getur verið sár. Sá sem verður fyrir einelti upplifir ekki aðeins orðin og gjörðirnar sem særa. Það getur líka verið óendanlega sárt þegar aðrir horfa aðgerðalausir á, þegar hópurinn ákveður að líta undan. Þess vegna þurfum við öll að temja okkur hugrekki, bæði í orði og verki.
Það þýðir ekki að við eigum að stofna okkur sjálfum í hættu en við eigum að láta vita þegar við verðum vitni að einelti. Við getum leitað hjálpar, staðið saman og sýnt þeim hlýju sem eru órétti beitt. Og við fullorðna fólkið verðum líka að axla okkar ábyrgð, hlusta og grípa inn í af festu, skilningi og umhyggju.
Við þurfum líka að líta í eigin barm. Börn læra það sem fyrir þeim er haft – af því hvernig við, sem eldri erum, umgöngumst hvert annað, hvernig við tölum um annað fólk og hvernig við leysum ágreining. Þetta á líka við um samfélagsmiðlana, þar sem illskeytt orð geta borist til þúsunda á andartaki og sært djúpt.“
Að loknu ávarpi forseta gerði Bergdísar Wilson, formaður fagráðs gegn einelti, grein fyrir hvatningarverðlaunum. Þau komu í hlut EKKO-teymis Fjölbrautarskóla Suðurlands en það skipa þær Halla Dröfn Jónsdóttir, Agnes Ósk Snorradóttir, Anna Fríða Bjarnadóttir og Bjarney Sif Ægisdóttir. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars:
„Á undanförnum tveimur árum hefur teymið unnið að því að skapa skýra verkferla, efla þekkingu starfsfólks og tryggja nemendum aðgengilegar leiðir til að leita aðstoðar og stuðnings. Sérstaklega er eftirtektarvert hvernig tekist hefur að virkja nemendur og starfsfólk til þátttöku og skapa sameiginlega ábyrgð á jákvæðum samskiptum og öruggu skólaumhverfi. Verkefnið Jákvæður nóvember og útgáfa EKKO-upplýsingabæklings eru góð dæmi um skapandi nálgun þar sem rödd nemenda fær raunverulegt vægi.
Dómnefnd metur það einnig mikils að áhersla sé lögð á snemmtæk inngrip, samræmd viðbrögð og eftirfylgni mála. Starfið einkennist af heildstæðri nálgun þar sem forvarnir, fræðsla og stuðningur fléttast saman í daglegu skólastarfi. Styrkur verkefnisins er að forvarnir gegn einelti eru gerðar að sameiginlegu viðfangsefni alls skólasamfélagsins.“
Fleiri fréttir

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“