„Þannig blómstrar mannlífið, ekki síður en gróðurinn“
29. apríl 2026
Ljósmyndir: EFÍ og Hveragerðisbær.
Forsetahjón tekur þátt afmælishátíð með Hvergerðingum.

Forseti naut aðstoðaar nemenda Garðyrkuskólans við gróðursetninguna í Höllulundi.




Forsetahjón fóru í opinbera heimsókn til Hveragerðis í tilefni af áttatíu ára afmæli bæjarins. Þau gróðursettu meðal annars tré í svonefndum Höllulundi, heimsóttu Reykjaböð og Hjúkrunarheimilið Ás og tóku lagið með barnahópi í Lystigarðinum. Heimsókninni lauk með hátíðardagskrá á Hótel Örk í boði bæjarstjórnar.
Fyrsta húsið í Hveragerði reis af grunni árið 1929 og tilheyrði bærinn fyrstu árin Ölfushreppi. Árið 1945 samþykkti meirihluti bæjarbúa að stofna sérstakan hrepp og var fyrsti fundur nýrrar hreppsnefndar haldinn 29. apríl 1946, daginn eftir sveitastjórnarkosningar það ár. Þessum tímamótum er fagnað með ýmsum hætti nú og var opinber heimsókn forsetahjóna liður í því.
Dagskráin hófst klukkan 8.30 með gróðursetningu forseta og nemenda í Garðyrkjuskólanum á reynitré í nýjum Höllulundi í Smágörðum. Þar er fyrir Vigdísarlundur en frú Vigdís Finnbogadóttir hafði frumkvæði að gróðursetningu þriggja trjáa þar árið 2015.
Næsti viðkomustaður forsetahjóna voru Reykjaböð, ný einkarekin heilsulind við mynni Reykjadals sem mun opna dyr sínar fyrir gestum innan tíðar. Þaðan héldu forsetahjón í Hjúkrunarheimilið Ás þar sem þau heilsuðu upp á heimilisfólk og þáðu veitingar. Karl Óttar Einarsson forstjóri Grundarheimilanna og Birna Sif Atladóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í Ási sögðu frá starfseminni og kynntu frekari byggingaráform á staðnum.
Kl. 10.30 hittu forsetahjón börn úr skólum Hveragerðisbæjar í Lystigarðinum Fossflöt. Börnin mynduðu þar saman töluna 80 í tilefni dagsins og sungu síðan ásamt gestum Hveragerðislagið undir stjórn Magnúsar Kjartans. Forseti ávarpaði viðstadda og brá á leik með börnunum.
Lokaviðburður heimsóknarinnar var hátíðardagskrá á Hótel Örk. Forseti bæjarstjórnar, Sandra Sigurðardóttir, flutti ávarp og færði forseta Íslands blómvönd og listaverk að gjöf. Að því loknu flutti forseti Íslands ávarp og færði bæjarstjórn ljósmynd sem tekin var í Hvergerði um það leyti sem bærinn varð að sjálfstæðum hreppi. Myndin er af Sveini Björnssyni, fyrsta forseta lýðveldisins, og Georgíu Björnsson, eiginkonu hans. Dagskránni lauk á hátíðarfundi bæjarstjórnar. Þar var Vilhjálmur Roe útnefndur fyrsti heiðursborgari Hveragerðis.
Í hátíðarávarpi sínu rifjaði forseti Íslands meðal annars upp minningar frá æskuheimsóknum sínum til Hveragerðis en lagði líka ríka áherslu á það mikilvæga hlutverk sem jarðhitinn hefur leikið í uppbyggingu bæjarins. Hún sagði meðal annars:
„Hverirnir hér á svæðinu urðu að einhverju marki ígildi fiskimiðanna annars staðar á landinu. En það sem skipti sköpum var sá frjói hugsunarháttur og athafnavilji sem hér hefur jafnan verið og við köllum nú á dögum nýsköpun. Þessi arfleifð er hluti af því mikla starfi Íslendinga á sviði jarðhitanýtingar sem vakið hefur heimsathygli og orðið að fyrirmynd víða um heim. Á þessu sviði eigum við enn mörg spennandi tækifæri til sóknar.“
Forseti lagði jafnframt áherslu á að ylinn, sem leyndist undir fótum bæjarbúa, mætti einnig finna í hjörtum þeirra. Óskaði hún þess að hann mætti næra bæjarlífið í Hveragerði og mannlífið í landinu um ókomin ár.
„Íbúarnir í Hveragerði hafa ekki aðeins framleitt matvæli og ræktað gróður heldur einnig heilsu og velsæld. … Þannig blómstrar mannlífið, ekki síður en gróðurinn, í Hveragerði.,“ sagði forseti Íslands meðal annars í ávarpi sínu.
Unnt er að lesa ávarpið í heild hér á vefnum.
Fleiri fréttir

1. maí 2026
Hátíðarhöld í Stokkhólmi
Forsetahjón gestir í afmælisfagnaði Karls XVI. Gústavs Svíakonungs.
1. maí 2026
Hátíðarhöld í Stokkhólmi

29. apríl 2026
Áttræðisafmæli Svíakonungs
Forsetahjón taka þátt í hátíðarhöldum í Stokkhólmi.
29. apríl 2026
Áttræðisafmæli Svíakonungs

25. apríl 2026
Tvö 100 ára afmæli sama dag
Forseti fagnar með Ljósmyndarafélaginu og Kvenfélagi Álftaness.
25. apríl 2026
Tvö 100 ára afmæli sama dag