Þátttakendur á sagnahátíð
14. nóvember 2025
Forsetahjón taka á móti gestum Iceland Noir.

Forseti og bandaríski rithöfundurinn George R.R. Martin. Ljósmynd: EFÍ.
Forsetahjón tóku á móti gestum sagnahátíðarinnar Iceland Noir á Bessastöðum. Hátíðin, sem fram fór dagana 12. til 15. nóvember, var fyrst haldin árið 2013 og hefur verið nærri árviss viðburður síðan. Hún var upphaflega skipulögð sem alþjóðleg glæpasagnahátíð en á seinni árum hefur sá hópur listafólks sem þar kemur fram breikkað. Meðal þekktra erlendra gesta að þessu sinni voru Siri Hustvedt, George R.R. Martin og Hwang Dong-Hyuk en í hópi íslenskra höfunda á hátíðinni voru Eliza Reid og Hildur Knútsdóttir. Skipuleggjendur Iceland Noir eru Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar