Þjálfun fyrir úkraínska hermenn
10. apríl 2025
Forsetahjón og Hákon, krónprins Noregs, heimsækja heimavarnardeild n...





Forsetahjón og Hákon, krónprins Noregs, heimsækja heimavarnardeild norska hersins, HV-12, í Værnes í Þrándheimi. Þar býðst úkraínskum hermönnum öflug þjálfun og menntun frá norskum heimavarnarhermönnum sem er hluti af svo kallaðri Gungne-aðgerð sem sett var á laggirnar í apríl 2023.
Heimsóknin var liður í dagskrá ríkisheimsóknar forseta til Noregs, sem endaði á þriðja degi í Þrándheimi.
Gestirnir fengu kynningu á verkefninu og áherslu norska hersins á áfallahjálp og bætta geðheilsu hermanna. Þá var þeim sýnt dæmi um þá þjálfun sem hermönnum býðst í neyðaraðstoð á vígvelli, með sérstakri hliðsjón af aðstæðum í Úkraínu.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar