Þrándheimur
10. apríl 2025
Forsetahjón heimsækja Þrándheim.








Forsetahjón heimsækja Þrándheim í fylgd Hákonar, krónprins Noregs. Heimsóknin var liður í dagskrá þriggja daga ríkisheimsóknar forseta til Noregs. Í Þrándheimi var sjónum meðal annars beint að viðskiptum og rannsóknasamstarfi í sjávarútvegi, menningu og varnarmálum.
Forsetahjón og krónprinsinn heimsóttu hina sögufrægu Niðarósdómkirkju í miðborg Þrándheims. Elstu hlutar kirkjunnar eru um 850 ára gamlir og á hún rætur djúpt í sameiginlegri sögu Íslands og Noregs. Herborg Finnset biskup fræddi gestina um sögu kirkjunnar og sýndi þeim aðalaltarið. Þá kom stúlknakór Niðarósdómkirkju fram og söng nokkra sálma, þar á meðal Heyr, himna smiður eftir Kolbein Tumason, sem er elsti varðveitti sálmur Norðurlanda.
Í gestastofu kirkjunnar var saman kominn hópur Íslendinga, sem búsettir eru í Þrándheimi, og gafst forsetahjónum færi á að ræða við þau, ásamt Hákoni krónprinsi. Þá bauð borgarstjóri Þrándheims, Kent Ranum, til hádegisverðar forseta Íslands til heiðurs. Ranum gegndi áður stöðu ræðismanns Íslands í Noregi.
Viðskiptaþing og varnarmál
Í Þrándheimi fór einnig fram viðskiptaþing á vegum norsku vísinda- og tæknistofnunarinnar NTNU og rannsóknarstofnunarinnar SINTEF, í samstarfi við Innovation Norway og Business Iceland. Viðburðinn sóttu fulltrúar úr íslensku- og norsku viðskiptalífi og sjávarútvegi.
Ferðinni til Þrándheims lauk með heimsókn til heimavarnardeildar norska hersins í Værnes þar sem forsetahjónum og krónprinsi var kynnt þjálfunar- og endurhæfingarverkefni sem Norðmenn annast fyrir úkraínska hermenn.
Hákon krónprins kvaddi forsetahjón formlega í Þrándheimi og héldu þau þaðan heim til Íslands að lokinni þriggja daga ríkisheimsókn.
Myndasafn frá ríkisheimsókn til Noregs.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk