„Þurfum að rækta leiðtogann í öðrum“
9. febrúar 2026
Stjórnvísi
Forseti afhendir stjórnunarverðlaun Stjórnvísi.

Forseti ásamt þeim sem fengu viðurkenningu að þessu sinni. Ljósmynd: Stjórnvísi.
Forseti afhenti Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi við hátíðlega athöfn á Grand Hótel. Verðlaunin eru veitt árlega í þremur flokkum en auk þess voru veitt sérstök heiðursverðlaun að þessu sinni.
Þeir sem hlutu viðurkenningu voru Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í flokki yfirstjórnenda, Óttar Örn Sigurbergsson framkvæmdastjóri ELKO og Helga Halldórsdóttir forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka, í flokki millistjórnenda og Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, í flokki frumkvöðla. Þá hlaut Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar.
Í ávarpi sem forseti flutti við athöfnina ræddi hún sérstaklega um þær áskoranir sem örar tækni- og samfélagsbreytingar hafa í för með sér fyrir leiðtoga, hvort sem er í fyrirtækjum eða á opinberum vettvangi. Hún sagði meðal annars: „Undir þessum kringumstæðum getum við ekki treyst bara á okkur sjálf, okkar nánasta samstarfsfólk eða tæknina. Áskoranirnar eru það flóknar og samofnar að við þurfum að valdefla alla sem leggja hönd á plóginn. Við þurfum, með öðrum orðum, bæði að rækta leiðtogann í okkur sjálfum og öðrum.“
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Markmiðið er að stuðla að fagmennsku á sviði stjórnunar hérlendis, örva umræðu um faglega stjórnun og vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“