Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
9. október 2026
Ljósmyndir: Pétur Fjeldsted.
Forseti tekur þátt í viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.

Í inngangsorðum forseta kom fram að heimildamyndirnar The Social Dilemma og The AI Doc hefðu upphaflega vakið athygli hennar á málflutningi þeirra Harris og Raskin.







Upptaka af viðburðinum The Humanity Dilema er aðgengileg á YouTube-rás Hringborðs Norðurslóða.
Sjá nánar.
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, tók þátt í óvenjulegum viðburði um þversagnir gervigreindar á dagskrá Hringborðs Norðurslóða í Hörpu. Viðburðurinn var tvískiptur. Fyrst vörpuðu Tristan Harris, Aza Raskin og Joy Mauthe Raskin ljósi á efnið í dagskrá þar sem fléttað var saman tali og tónum. Þeim til aðstoðar var tónlistarfólkið Andrei Matorin og Markéta Irglová. Að því loknu áttu forseti og Harris samtal um mikilvægi þess að hægja á þróun gervigreindar og nýta hana í þágu mannvænnar framtíðar.
Viðburðurinn, sem fór fram á ensku, kallaðist The Humanity Dilemma: AI and the Future We Choose. Markmið þeirra Harris og Raskin-hjóna með honum er að vekja almenning og áhrifafólk til vitundar um þær miklu hættur sem felast í of hraðri þróun gervigreindar og hvetja til aðgerða. Þau skiptu dagskrá sinni í fjóra kafla og nýttu tónlist og myndefni til að hnykkja á skilaboðunum.
Samtal forseta og Harris snerist meðal annars um nauðsyn þess að stjórnvöld og tæknifyrirtæki víða um heim taki höndum saman við að koma böndum á gervigreindina en á liðnum vikum hafa borist ítrekaðar fréttir af því að hún lúti ekki lengur vilja þeirra sem eru að þróa hana. Í lok samtals þeirra söng Kór Kársnesskóla lag Johns Lennon, „Imagine“ („Að hugsa sér“), við íslenskan texta Þórarins Eldjárns.
Þeir Tristan Harris og Aza Raskin eru tveir af stofnendum Miðstöðvar mannvænnar tækni (Center for Humane Technology) sem starfrækt hefur verið frá árinu 2018. Þeir komu að gerð heimildamyndanna The AI Doc: Or How I Became an Apocaloptimist (Gervigreindarrýni: Hvernig ég öðlaðist heimsendabjartsýni) frá 2026 sem sýnd var í Sjónvarpinu fimmtudaginn 8. október og The Social Dilemma frá 2020 sem vakti mikla athygli víða um heim. Forseti hefur á liðnum misserum hvatt til vitundarvakningar um áhrif samfélagsmiðla og gervigreindar á einstaklinga og samfélög. Hún tók í júlímánuði sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna um gervigreind til góðs.
Að loknu viðburðinum í Hörpu áttu forseti, Harris og Raskin-hjón samtal við sérfræðinga og áhugafólk um gervigreind sem starfar m.a. hjá íslenskum tæknifyrirtækjum og innan stjórnsýslunnar. Í lok dags héldu forsetahjón og erlendu gestirnir til Viðeyjar. Þau voru viðstödd þegar kveikt var þar á Friðarsúlunni, listaverki Yoko Ono, ekkju Johns Lennon, en 9. október er fæðingardagur hans.
Hægt er að horfa á heimildamyndina The AI Doc: Or How I Became an Apocaloptimist (Gervigreindarrýni: Hvernig ég öðlaðist heimsendabjartsýni) á vef RÚV.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar