Ungir frumkvöðlar
10. janúar 2025
Forseti opnar fyrirtækjasmiðjuna Sparkið 2025.






Forseti flytur opnunarávarp á Sparkinu 2025, fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Verkefnið fer fram í framhaldsskólum landsins á vorönn 2025 og taka um 700-800 nemendur þátt í því.
Opnunarviðburðurinn var haldinn í Háskólanum í Reykjavík og jafnframt sýndur í beinu streymi og má sjá upptökuna hér. Í ávarpi sínu sagði forseti nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi lengi hafa verið sér hjartans mál enda hafi hún kennt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík fyrir rúmum aldarfjórðungi. Hugtakið nýsköpun hafi þá komið mörgum spánskt fyrir sjónir og því sé fagnaðarefni að nú fái hundruð framhaldsskólanema tækifæri til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.
„Ég leyfi mér að fullyrða að fátt sé jafn lærdómsríkt og að ganga í gegnum frumkvöðlaferlið. Að virkja sköpunarkraftinn til að fæða af sér góða hugmynd og starfa saman í hópi ólíkra einstaklinga við að hrinda þeirri hugmynd í framkvæmd,“ sagði forseti í ræðu sinni. Um leið hvatti hún unga frumkvöðla til þess að hafa í huga hvort nýsköpun þeirra sé til þess fallin að leysa vandamál og bæta líðan fólks eða gangverk samfélagsins. „Ég er sannfærð um að fyrirtæki sem eru byggð á grunni góðs tilgangs og gilda ná lengra – og gefa jafnframt meira af sér.“
Markmiðið að búa ungt fólk undir framtíðina
Að máli forseta loknu sagði Orri Einarsson, stjórnarmaður í JA Alumni, frá starfsemi samtakanna á önninni. Að lokum sögðu vinningshafar úr smiðjum fyrri ára frá reynslu sinni og hvað á daga þeirra hefur drifið frá þátttöku í fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla.
Samtökin Ungir frumkvöðlar á Íslandi voru stofnuð árið 2022 og eiga þau aðild að alþjóðlegu félagasamtökunum Junior Achievement sem starfa í 123 löndum. Um 15 milljón nemendur taka þátt í verkefnum á vegum samtakanna víðs vegar um heiminn. Markmið JA er að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að efla nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í skólum.
Sjá pistil forseta: Fyrirtækjasmiðja Ungra frumkvöðla.
Fleiri fréttir

17. mars 2026
Nýr aðstoðarmaður forseta
Guðrún Dröfn Guðmundsdóttir ráðin í tímabundið starf.
17. mars 2026
Nýr aðstoðarmaður forseta

3. mars 2026
Góðir gestir frá Kanada
Forseti fundar með Francis Scarpaleggia.
3. mars 2026
Góðir gestir frá Kanada

28. febrúar 2026
„Heilbrigð sál í hraustum líkama“
Forseti vígir íþróttamiðstöð í Búðardal.
28. febrúar 2026
„Heilbrigð sál í hraustum líkama“