Utanríkisráðherra Grænlands
16. október 2024
Forseti á fund með Vivian Motzfeldt.



Forseti á fund með Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, sem er hér á landi vegna ráðstefnunnar Hringborð norðurslóða. Rætt var um horfur grænlensku þjóðarinnar til framtíðar og möguleika á auknu samstarfi milli Íslands og Grænlands. Fyrirhugað er að tveir nýir flugvellir opni á Grænlandi á næstu árum, í Nuuk og Ilulissat og greindi ráðherrann frá áformum um aukna ferðamennsku samhliða því og styrkingu viðskiptatengsla bæði til austurs og vesturs. Jafnframt var rætt um þær áskoranir sem Grænlendingar glíma við vegna loftslagsbreytinga, skorts á innviðum og strjálbýlis.
Forseti greindi ráðherra frá umræðum í nýlegri ríkisheimsókn til Danmerkur um tækifæri til aukins samstarfs Íslands, Grænlands og Danmerkur við nýtingu grænnar orku. Um leið var rætt um mikilvægi þess að náttúruauðlindir séu nýttar með ábyrgum hætti. Loks ræddu forseti og ráðherra um vináttu þjóðanna sem meðal annars birtist í samstarverkefnum líkt og árlegri sundkennslu fyrir grænlensk börn á Íslandi og heimboði barnanna til forseta á Bessastöðum.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar