„Við getum allt sem við viljum“
3. desember 2025
Forseti afhendir Hvatningarverðlaun ÖBÍ.

Forseti ásamt þeim sem hlutu viðurkenningu ÖBÍ á alþjóðadegi fatlaðs fólks árið 2025. Ljósmynd: Ruth Ásgeirsdóttir.

Forseti afhenti Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka á Hótel Reykjavík Grand, en þau eru veitt árlega á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Magnús Orri Arnarson kvikmynda- og þáttagerðarmaður hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar, kvikmyndagerðar og íþrótta.
Magnús Orri hefur nýlega lokið við heimildamyndina „Sigur fyrir sjálfsmyndina“ þar sem keppendum á heimsleikum Special Olympics á Ítalíu 2025 er fylgt eftir. Hann á sjálfur að baki feril á Special Olympics og hefur einnig verið í hópi umsjónarfólks sjónvarpsþáttaraðarinnar „Með okkar augum“. „Ég er ofboðslega þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem ég hef fengið. Takk fyrir fatlað fólk. Við getum gert allt sem við viljum,“ sagði Magnús Orri meðal annars þegar hann tók við hvatningarverðlaununum. Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.
Aðrir sem hlutu tilnefningu til Hvatningarverðlauna ÖBÍ að þessu sinni og forseti afhenti viðurkenningar eru Hákon Atli Bjarkason fyrir að vera frábær fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks, Listvinnzlan fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fyrir fjölgun atvinnutækifæra og Sigurður Hólmar Jóhannesson fyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“