„Við skulum taka höndum saman“
3. október 2026
Ljósmyndir: EFÍ, Elísabet Blöndal, RÚV og Trausti Þorgeirsson.
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.

Frá opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni þar sem forseti flutti ávarp.



Bleika slaufan, söfnunarátak Krabbameinsfélagsins, stendur frá 30. september til 24. október.
Sjá nánar
Forseti lagði tveimur landssöfnunum lið í þessari viku, Bleiku slaufunni og Endurhæfum Reykjalund. Hún tók einnig á móti góðum gestum á Bessastöðum. Þeirra á meðal var Rania Dagash-Kamara, aðstoðarframkvæmdastjóri Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (MSÞ).
Miðvikudagskvöldið 30. september tók forseti þátt í opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Perlunni. Um er að ræða árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Hönnuðir slaufunnar að þessu sinni voru Tanja Levý og Jökull Jónsson. Varð slaufan til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju. Á vef Krabbameinsfélagsins kemur fram að árlega fái að meðaltali ríflega 1.000 konur hér á landi krabbamein. Framfarir í krabbameinslækningum hafa til allrar hamingju verið miklar á liðnum árum. Samkvæmt gögnum Krabbameinsfélagsins voru í árslok 2025 nærri 11.000 íslenskar konur á lífi sem höfðu fengið sjúkdóminn.
Föstudagskvöldið 2. október var söfnunar- og skemmtiþáttur í Sjónvarpinu í tilefni af átakinu Endurhæfum Reykjalund sem Hollvinir Reykjalundar standa fyrir. Fjöldi listafólks, skjólstæðinga Reykjalundar og annars velgjörðarfólks kom þar fram. Forseti tók einnig þátt í dagskránni með kveðju frá Bessastöðum. Hún lagði áherslu á að í áratugi hefði starfsfólk Reykjalundar hjálpað ótal Íslendingum að ná heilsu og komast aftur út í lífið. „En nú þarf Reykjalundur á okkur að halda. Við skulum taka höndum saman og sýna þeim hlýju og þakklæti í verki,“ sagði hún meðal annars. Rúmar 110 milljónir króna söfnuðust þetta kvöld til viðhalds og uppbyggingar á húsnæði Reykjalundar í Mosfellsbæ.
Í liðinni viku átti forseti einnig fund með Raniu Dagash-Kamara um starfsemi MSÞ sem veitir matvælaaðstoð víða um heiminn til fólks í neyð. Framlög margra aðildaríkja Sameinuðu þjóðanna til stofnunarinnar hafa verið að dragast saman en eitt af markmiðum ferðar Dagash-Kamara hingað til lands var að efla samstarf við íslensk stjórnvöld og fyrirtæki. Þess má geta að forseti heimsótti höfuðstöðvar stofnunarinnar í Róm í maímánuði og átti þá fund með Dagash-Kamara og Carl Skau. Þá kom fram að Ísland var fjórði veigamesti greiðandi framlaga til MSÞ á liðnu ári ef miðað er við höfðatölu.
Söfnunar- og skemmtiþátturinn Endurhæfum Reykjalund er aðgengilegur á vef RÚV. Enn er hægt að leggja söfnuninni lið.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“

16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar
Forseti birtir grein í tímaritinu TIME.
16. október 2026
Mannleg dómgreind á tímum gervigreindar