Viðburðir í Gimli
3. ágúst 2025
Forsetahjón taka þátt í hátíðarhöldum Íslendingadagsins.






Forseti Íslands ávarpaði samkomu þar sem hópur nítján íslenskra kvenna færði samfélaginu í Gimli nýjan kyrtil á fjallkonuna. Þetta var kyrtill sem þær höfðu saumað. Verkefnið, sem fékk heitið „Gjöf kvenna á Íslandi til kvenna á Nýja Íslandi“, var unnið með stuðningi frá fyrirtækinu „Annríki – þjóðbúningar og skart“ í nánu samráði við stjórnendur Íslendingadagsins í Gimli. Þá skoðuðu forsetahjónin New Iceland Heritage Museum, minjasafn helgað landnámi og búsetu Vestur-Íslendinga á þessu svæði.
Lokaviðburður heimsóknar forsetahjóna til Manitoba-fylkis í Kanada var þátttaka þeirra í hátíðarhöldum Íslendingadagsins í Gimli. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1890 og er næstelsta þjóðernishátíð (e. ethnic festival) sem haldin er í Norður Ameríku. Einnig er Íslendingadagurinn stærsta hátíð fólks af íslenskum uppruna í Kanada. Meðal íslenskra listamanna sem sóttu hátíðina heim í ár voru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Leifur Björnsson og Margrét Áskelsdóttir, að ógleymdum Sprettskórnum og Karlakór Hreppamanna. Einn af hápunktum hátíðarhaldanna var fjölmennur hátíðarakstur. Var forsetahjónum ekið í glæsibifreið um götur Gimli. Seinna sama dag flutti forseti hátíðarávarp á formlegri dagskrá Íslendingadagsins í Gimli Park og ræddi þar meðal annars stöðu kvenréttinda á Íslandi og vestur-íslenska frumkvöðla á því sviði í Kanada.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar