Vígsluafmæli Grafarvogskirkju
16. nóvember 2025
Forsetahjón viðstödd hátíðarguðsþjónustu.

Forsetahjón voru heiðursgestir í hátíðarguðsþjónustu í tilefni af 25 ára vígsluafmæli Grafarvogskirkju. Vígðir þjónar kirkjunnar þjónuðu fyrir altari en prédikun flutti séra Arna Ýrr Sigurðardóttir sóknarprestur.
Grafarvogskirkja var vígð 18. júní árið 2000 en fjölmörg sóknarbörn höfðu lagt hönd á plóginn við byggingu hennar næstu misseri þar á undan. Grafarvogssöfnuður er einn fjölmennasti söfnuður landsins og er kirkjan vettvangur fjölbreytts safnaðarstarfs.
Að guðsþjónustunni lokinni þakkaði séra Arna Ýrr forsetahjónum fyrir komuna og færði Guðríður Kristinsdóttir þeim bók og fallegan blómvönd fyrir hönd safnaðarins.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar