Vinaskógur
18. september 2024
Forseti flytur ávarp og gróðursetur tré.

Forseti gróðursetur tré í Vinaskógi ásamt Jónatan Garðarsyni, formanni Skógræktarfélags Íslands. Ljósmynd: Skrifstofa forseta/Una Sighvatsdóttir










Forseti flytur ávarp og gróðursetur tré í tilefni þess að 75 ár eru liðin frá fyrstu gróðursetningu þar fyrir hönd vinaþjóðanna Íslands og Noregs. Skógræktarfélag Íslands og sendiráð Noregs á Íslandi boðuðu til sameiginlegrar athafnar í Vinaskógi við Þingvelli. Stofnað var til skógarins árið 1990 að frumkvæði Vigdísar Finnbogadóttur og hafa forsetar lýðveldisins tekið þátt í athöfnum þar af ýmsu tagi, meðal annars í fylgd erlendra þjóðhöfðingja sem sækja Ísland heim.
Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, leiddi athöfnina og aðstoðaði forseta og sendiherra Noregs, Cecilie Willoch, við að gróðursetja þrjú tré til merkis um vináttusamband Íslands og Noregs. Þá var forseta afhent að gjöf bókin Frændur fagna skógi, sem Skógræktarfélag Íslands og Skógræktarfélag Noregs gefa út sameiginlega á íslensku og norsku. Bókin fjallar á ítarlegan hátt um samskipti Íslands og Noregs hvað varðar skógrækt og timburnytjar frá upphafi byggðar á Íslandi.
Að athöfninni í Vinaskógi lokinni var haldið í Norska lundinn á Þingvöllum þar sem Einar Á. Sæmundsen þjóðgarðsvörður tók á móti hópnum og sagði frá upphafi skógræktar Norðmanna þar árið 1949, þróun hennar og áhrif á ásýnd staðarins.
Fleiri fréttir

25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland
Forsetahjón taka þátt í Bræðslunni og Flugi og fákum.
25. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Austurland

24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum
Forseti afhendir Frímanni Sveinssyni viðurkenningu Norðurþings 2026.
24. júlí 2026
Forsetahjón heimsækja Húsavík og taka þátt í Mærudögum

23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland
Forsetahjón heimsækja Akureyri og taka þátt í Landsmóti skáta.
23. júlí 2026
Forsetahjón á ferð um Norðurland