„Vinur er sá sem til vamms segir“
15. nóvember 2026
Ljósmyndir: Sigurður Ólafur Sigurðsson.
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.




Ávarp forseta er aðgengilegt í heild hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forseti flutti ávarp á minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa utan við Borgarspítalann í Fossvogi. Meðal annarra sem tóku þar til máls voru Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Haraldur Már Haraldsson sem lenti í alvarlegu bílslysi árið 2008.
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er skipulagður árlega en tilgangur hans er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Minningarstundir fara fram víða um land á þessum degi, þar á meðal við þyrlupallinn austan Borgarspítalans. Sjónum var að þessu sinni beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Í ávarpi sínu beindi forseti máli sínu sérstaklega til síðarnefnda hópsins og sagði meðal annars:
„Við lifum á tímum þar sem athygli og áhrif í hinum stafræna heimi eru orðin að eins konar gjaldmiðli. Óábyrg hegðun getur orðið að leik og jafnvel skemmtiefni á samfélagsmiðlum. Ungt fólk getur freistast til að hrífast með og vilja sýna öðrum hve kjarkað það er. En raunverulegt hugrekki felst ekki í því að taka mestu áhættuna. Það felst allt eins í að vera sá eða sú sem segir: „Nei! Hægðu á þér. Þetta er ekki þess virði.“
Það krefst hugrekkis að þora að standa gegn hópþrýstingi, að hugsa um vini sína, að velja lífið. Og ef vinur þinn eða vinkona tekur óþarfa áhættu þá felst vináttan ekki í því að hvetja viðkomandi áfram, taka upp myndband eða þegja gegn betri vitund. Samkvæmt gömlu máltæki er vinur sá sem til vamms segir. Það merkir að sönn vinátta felst í því að grípa í taumana áður en illa fer, jafnvel þótt það sé óþægilegt. Við þurfum fleiri einstaklinga sem hafa hugrekki til grípa inn í, leiðtoga sem skilja að ein augnabliksákvörðun getur haft óafturkræfar afleiðingar fyrir stóran hóp fólks.“
Að lokinni dagskrá við þyrlupallinn heimsótti forseti starfsfólk bráðadeildar og átti einnig samtal við forystufólk Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Fleiri fréttir

11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“
Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum.
11. nóvember 2026
„Framtíð unga fólksins mikilvægasta verkefni þjóðarinnar“

7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.
7. nóvember 2026
„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“

6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.
6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“