„Virðing fyrir fjölbreytileika ein af forsendum lýðræðisins“
11. nóvember 2026
Ljósmynd: Sunna Ben.
Forseti ávarpar ráðstefnu um samfélagsmiðla og réttindi trans fólks.

Forseti flutti opnunarávarp á ráðstefnu um áhrif algríms gervigreindar á viðhorf ungs fólks og bakslag í umræðum um réttindi trans fólks á Norðurlöndum. Að ráðstefnunni, sem fór fram á ensku, stóðu NORDREF (Nordic Digital Rights and Equality Foundation), Transfeminiinit, Samtökin ‘78 og OFSI (Ofbeldisforvarnaskólinn).
Á viðburðinum, sem fram fór í Norræna húsinu, voru kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar á því hvernig málefni trans fólks birtast ungum notendum samfélagsmiðla á Norðurlöndum. Í pallborðsumræðum var meðal annars rætt um hvernig vernda mætti mannréttindi og lýðræði í stafrænum heimi á tímum upplýsingaóreiðu og gervigreindar.
Í ávarpi sínu lagði forseti áherslu á að samfélagsmiðlar hefðu fengið að þróast án mikils eftirlits og haft margvísleg óæskileg hliðaráhrif, ekki síst á ungt fólk. Nú væri sagan að flestu leyti að endurtaka sig í tilviki gervigreindar nema hvað hraði breytinganna væri meiri. Forseti sagði ennfremur:
„Þekking okkar, stofnanaumgjörðin og öryggisráðstafanir verða að fylgja þessari þróun. Við megum ekki gleyma okkur í aðdáun á því sem þessi tækni getur áorkað. Við verðum að öðlast þá visku sem þarf til að hafa stjórn á henni, tryggja að hún þjóni mannkyninu og styrki samfélagið, fremur en að grafa undan því og þeim gildum það byggir á.“
Ávarp forseta, sem flutt var á ensku, er aðgengilegt í heild hér á vefnum.
Sjá nánar.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“