„Vítamín fyrir þjóðarsálina“
11. febrúar 2026
mbl.is/Karítas.
Forseti afhendir bókmenntaverðlaun á Bessastöðum.

Forseti, Kristín Svava Tómasdóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir, Ævar Þór Benediktsson, Sigrún Pálsdóttir, Margrét S. Höskuldsdóttir, Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Ljósmynd: mbl.is/Karítas.
Forseti afhenti Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropann - íslensku glæpasagnaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Dagskráin var send út beint á RÚV.
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru veitt í þremur flokkum. Verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis hlaut Kristín Svava Tómasdóttir fyrir Fröken Dúllu: Ævisögu. Verðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka hlutu Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir myndhöfundur fyrir söguna Skólastjórann. Verðlaunin í flokki skáldverka hlaut Sigrún Pálsdóttir fyrir skáldsöguna Bláa pardusinn: hljóðbók. Blóðdropann - íslensku glæpasagnaverðlaunin hlaut Margrét S. Höskuldsdóttir fyrir skáldsöguna Lokar augum blám.
Í ávarpi sínu á athöfninni sagði forseti meðal annars: „Bókmenntirnar okkar styrkja ekki bara íslenska tungu heldur eru þær sannkallað vítamín fyrir þjóðarsálina. Þær geta hreyft við huga okkar og hjarta, speglað það sammannlega en um leið skerpt vitund okkar um hver við Íslendingar erum og hver við viljum vera.“
Sjá má lista yfir þær tuttugu bækur sem tilnefndar voru og umsagnir dómnefnda um verðlaunaverkin fjögur á vefsíðu Félags íslenskra bókaútgefenda. Upptaka frá athöfninni á Bessastöðum er aðgengileg á vef RÚV.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar