Forseti tekur þátt í arinspjalli með formanni Landssambands eldri borgara, Helga Péturssyni, á landsfundi sambandsins sem haldinn er í Reykjanesbæ. Ræddu þau um stöðu eldri borgara og hvernig betur má styðja við andlega, félagslega og líkamlega vellíðan samhliða því að efla mikilvæg tengsl sem bæta lífsgæði.
Forseti hlýddi einnig á hugvekju Eddu Björgvinsdóttur, leikkonu.