Forseti ávarpar setningu Íþróttaþings ÍSÍ, Íþrótta-og ólympíusambands Íslands, sem fram fer á Hótel Natura í Reykjaví. Íþróttaþing er æðsta vald um málefni ÍSÍ sem efnt er til annað hvert ár og er þetta í 77. sinn sem þingið er haldið.
Í ávarpi sínu ræddi forseti meðal annars mikilvægi íþrótta fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu. Þá ítrekaði forseti vægi íþrótta í forvarnarstarfi og til eflingar lýðheilsu. „Virði íþrótta nær langt umfram sigra. Íþróttir mennta fólk, aga það, búa til félagsleg tengsl, stuðla að góðri heilsu og endatakmarkið hlýtur því að vera gleði og hamingja,“ sagði í ávarpi forseta.
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, flutti einnig ávarp og greindi frá því að undirbúningur nýrrar þjóðarhallar væri langt á veg kominn.
Við þingsetninguna voru jafnframt veittar heiðursviðurkenningar til forystufólks úr íþróttahreyfingunni sem nánar má lesa um á vefsíðu ÍSÍ.