Forseti sæmir tvo japanska ríkisborgara riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, við athöfn í sendiherrabústað Íslands í Tókýó. Sérstakur heiðursgestur viðburðarins var prinsessan Tsuguko af Takamado, sem er meðlimur japönsku keisarafjölskyldunnar.
Þau sem sæmd voru heiðursmerkinu heita Yoko Kamikawa, þingkona og fyrrverandi utanríkisráðherra Japans, og Atsushi Sunami, forseti hugveitunnar Sasakawa Peace Foundation. Bæði hljóta þau fálkaorðuna fyrir störf í þágu samstarfs og vináttu Íslands og Japans.