Fréttir | 16. okt. 2025

Viðskiptalíf sem lætur gott af sér leiða

Á fimmta degi opinberrar heimsóknar sinnar til Kína flutti forseti opnunarávarp alþjóðlegrar viðskiptaráðstefnu um ábyrgan fyrirtækjarekstur. Ráðstefnan fer fram í Shanghai en þangað kom forseti síðdegis í gær eftir þriggja daga dvöl í Peking. Meðal annarra liða á dagskrá forseta í Shanghai í dag og á morgun er heimsókn í Yuan-garðinn, sem á sér aldalanga sögu, og samræður við nemendur í alþjóðlega CEIBS-viðskiptaháskólanum og Fudan-háskóla. 

Ráðstefnan sem forseti ávarpaði í morgun ber yfirskriftina „Tökum höndum saman andspænis áskorunum." Forseti lagði í máli sínu áherslu á að gott viðskiptalíf væri viðskiptalíf sem léti gott af sér leiða, útrýmdi fátækt, ýtti undir nýsköpun og inngildingu og stuðlaði að friði og farsæld í heiminum. Hún sagði jarðarbúa standa frammi fyrir stórum og flóknum áskorunum sem ekki yrðu leystar án ábyrgrar þátttöku viðskiptalífsins.

Umhverfislegir og félagslegir þættir og stjórnarhættir (UFS) er íslensk þýðing á enska orðasambandinu Environmental, Social and Governance (ESG). Það vísar til alþjóðlegra viðmiða sem eru notuð til að meta ábyrgar fjárfestingar. Hugað er að umhverfislegum áhrifum starfseminnar, því hvernig fyrirtæki kemur fram við starfsfólk, birgja, viðskiptavini og nærsamfélagið og hvort stjórnarhættir séu til fyrirmyndar, þar með talið innra eftirlit. Forseti vísaði ítrekað til þessara viðmiða og hvatti leiðtoga í viðskiptalífi til að leggja þau til grundvallar ákvörðunum sínum og við stefnumótun. 

„Kínverska táknið fyrir „kreppu“ felur bæði í sér tilvísun til hættu og tækifæra. Það á vel við um þær krossgötur sem við stöndum á," sagði forseti meðal annars og tók dæmi af norrænum fyrirtækjum sem hefðu brugðist við áskorunum í loftlagsmálum af ábyrgð og festu. „Ég vona að við séum nógu skynsöm til að taka langtímasjónarmið fram yfir skammtímahagnað, til að sýna hugrekki í stað þess að fljóta með straumnum. Og ég vona að við öll, stærri og smærri þjóðir, getum mótað saman framtíð þar sem viðskiptalífið starfar í þágu mannkynsins alls og sameiginlegra heimkynna okkar," sagði forseti að lokum.

Unnt er að lesa ávarpið í heild sinni á vef embættisins.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar