Forsetaembættið hefur enn á ný fengið ábendingar um falsfréttir og fölsuð myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem andlit og rödd forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, eru notuð í annarlegum tilgangi. Þetta efni er framleitt með aðstoð gervigreindar í þeim tilgangi að blekkja almenning. Efni af líku tagi var í umferð síðastliðið sumar.
Forseta þykir alvarlega vegið að sér og æru sinni með öllum slíkum fölsunum. „Ef fólk rekst á myndbönd af mér, eða öðrum þjóðþekktum einstaklingum að biðja það um að fjárfesta í einhverju þá er eins gott að staldra við, því það mun ég aldrei gera,“ sagði forseti í viðtali á Bylgjunni 21. ágúst síðastliðinn. Embættið vill undirstrika þessi orð og hvetja almenning til að gæta sín á fölsuðu efni af þessu tagi, hvort sem um er að ræða fréttir um fjárfestingar, auðfenginn gróða eða endurgreiðslur frá skattinum. Forseti mun aldrei leggja nafn sitt við slíkt efni.
Þar sem verið er að dreifa umræddu efni á ensku og alþjóðlega er ástæða til að birta hér einnig tilkynningu á ensku:
It has been brought to the attention of the Presidency that Halla Tómasdóttir, the President of Iceland, has been fraudulently displayed in deepfake AI video-materials and other social media posts. Please be aware of such forgeries and know that under no circumstances does the President of Iceland provide investment advice or make social media posts about money making tips or tax reimbursements.