Forseti fundaði með Oleksí Petróvitsj Havrísj, sendiherra Úkraínu, á Bessastöðum. Þau ræddu um stöðuna í Úkraínu, friðarviðræður sem nú standa yfir og ýmis samstarfsverkefni Íslands og Úkraínu sem unnið er að þessi misserin. Havrísj fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi og hefur aðsetur í Osló.