Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi á morgun, föstudagskvöldið 6. febrúar. Býðst almenningi að skoða staðinn milli klukkan 18:00 og 21:00. Klukkan 18.30 og kl. 20.00 verður Anna Jóhannsdóttir listfræðingur með fræðslu um listaverk í eigu Listasafns Íslands sem prýða staðinn. Forsetahjón munu einnig heilsa upp á gesti.
Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu sem eru síðari tíma viðbyggingar. Á forsetasetrinu er merkilegt úrval myndlistar og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Starfsmenn embættis forseta Íslands veita upplýsingar um það sem fyrir augu ber og verða gestum til aðstoðar.