• Forseti heilsar ungum herramanni í móttökusal Bessastaða. Ljósmynd: Eyþór Árnason.
  • Anna Jóhannsdóttir segir frá málverki Kristínar Jónsdóttur, Við Þvottalaugarnar, sem er í móttökusal Bessastaða. Ljósmynd: EFÍ.
  • Gestir njóta leiðsagnar í borðstofunni á Bessastöðum á Safnanótt. Ljósmynd: Eyþór Árnason.
  • Flestir gestanna á Bessastöðum á Safnanótt heilsuðu upp á forsetahjónin. Ljósmynd: Eyþór Árnason.
Fréttir | 06. feb. 2026

Fjölmennt á opnu húsi

Forsetahjón tóku á móti nærri 500 gestum á Bessastöðum á Safnanótt. Anna Jóhannsdóttir listfræðingur, sem starfar hjá Listasafni Íslands, gerði grein fyrir málverkum úr eigu safnsins sem prýða nú forsetasetrið. Gestir nutu einnig leiðsagnar starfsfólks embættisins og nemenda í sagnfræði við Háskóla Íslands.  

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar