Innrétting Sveins Kjarvals

„Sveinn Kjarval var mikilvirkur brautryðjandi í hönnun húsgagna og innréttinga hérlendis á fimmta og sjötta áratug tuttugustu aldar.“

Í bókhlöðunni á Bessastöðum er fögur innrétting sem Sveinn Kjarval hannaði. Hún samanstendur af bókahillum og skrifborði. Stór hluti af bókasafni forsetaembættisins er varðveittur þarna en einnig ýmsir merkir gripir í eigu embættisins.
Hugmyndina að byggingu bókhlöðunnar átti Ásgeir Ásgeirsson sem gengdi embætti forseta Íslands frá 1952 til 1968. Í blaðaviðtali við Ásgeir sem birtist 1962 lýsti hann þörfinni á þessari byggingu svo:
„En það hefir dregizt fulllengi að forsetabústaðurinn eignaðist allt hið merkasta, sem gefið hefir verið út af íslenzkum bókmenntum. Bygging bókhlöðunnar er fyrsta sporið í þá átt. Okkar gömlu bókmenntaþjóð ætti að sjálfsögðu að vera það bæði ljúft og skylt, að sjá þjóðhöfðingjaembættinu fyrir úrvali íslenzkra bókmennta sem allir forsetar gætu haft afnot af i framtíðinni og sýnt innlendum og erlendum gestum sínum. Ekkert er eðlilegra en gestir, sumir af fjarlægum löndum, spyrji þjóðhöfðingja fomfrægrar bókmenntaþjóðar, hvar bókasafn embættisins sé og hvort þeir megi ekki líta á það, og fram að þessu hefir ailt bókasafnið verið 3 bækur. Án bókmennta okkar væri hið unga, endurreista lýðveldi ekki til, og virðist því ekki nema skylt að þeirra bókmennta sjái einhvern vott á Bessastöðum”
Gunnlaugur Halldórsson arkitekt teiknaði bókhlöðuna en hann hafði tveimur áratugum fyrr einnig teiknað móttökusalinn á Bessastöðum og var um áratugaskeið embættinu til ráðgjafar þegar kom að viðhaldi bygginga og skipulagi staðarins. Átti hann hugmyndina að því Sveinn yrði fenginn til að hanna innréttinguna. Þetta kemur meðal annars fram á áletrun sem leynist á bakhlið einnar einingar bókaskáps bókhlöðunni. Þar segir meðal annars:
„Samkvæmt ósk forseta Íslands, herra Ásgeirs Ásgeirssonar, og konu hans, frú Dóru Þórhallsdóttur, var hafizt handa við að innrétta bókhlöðu Bessastaða haustið 1964 og var fyrsta áfanga þess lokið í maí mánuði 1965, en það er allur vestur-veggur bókhlöðunnar. Fyrir milligöngu Gunnlaugs Halldórssonar, arkitekts MAA Álftanesi, var Sveini Kjarval húsgagnaarkitekt FHA Reykjavík, falið að teikna og sjá um útfærzlu innréttinganna og annaðist hann allt eftirlit og umsjón með framkvæmd verksins.“

Innrétt Sveins Kjarvals á vesturvegg bókhlöðunnar.
Í nýrri heimildamynd um feril Sveins Kjarvals skoða Jóhann Gunnar Arnarsson, staðarhaldari á Bessastöðum, og Kolbrúnu dóttur Sveins innréttinguna saman. Samtal þeirra hefst á 20:40.
Sjá nánar.
Nokkrum árum eftir að bókhlaðan var tilbúin tóku 20 íslensk fyrirtæki höndum saman og lögð fé í sjóð til að kaupa vandað bókasafn Boga heitins Ólafssonar sem verið hafði kennari við Menntaskólann í Reykjavík. Var meginhluti safnsins gefinn af fyrirtækjunum til Bessastaða. Helgi Tryggvason birti um svipað leyti grein um bókasafn Boga og sagði þar meðal annars:
„Safnið er ekki stórt, en mjög gott sýnishorn af íslenzkum bókmenntum. Og einmitt nú, þegar búið er að byggja fyrirmyndarbókhlöðu á Bessastöðum, sem sæmir vel æðsta heimili landsins, og forsetaskipti eru framundan er alveg tilvalið að gera gangskör að þessu. Þótt við værum svo heppnir, að tveir fyrstu forsetar okkar ættu góð bókasöfn, megum við ekki gera ráð fyrir því sem einhverju vísu, að forsetar okkar í framtíðinni leggi á borð með sér þann bókakost, sem sómi sé að sýna þeim erlendu og innlendu gestum, sem heimsækja Bessastaði. Þeim er vitanlega kunnugt um, að hið eina sem við höfum fram yfir aðrar þjóðir, eru bókmenntirnar.”
Bókagjöfin var afhent við hátíðlega athöfn í ársbyrjun 1970. Þá hafði Kristján Eldjárn verið kjörinn forseti Íslands. Hann sagði af þessu tilefni að safnið væri staðarprýði og fagnaði því að hafa gott úrval bóka við hendina heima á Bessastöðum.

Í syðri enda bókhlöðunnar er málverk eftir Jóhannes Kjarval, föður Sveins Kjarvals.
Í tímaritinu Arkitektúr og hönnun má finna gott yfirlit um feril Sveins Kjarvals.
Sjá nánar.
Í grein um feril Sveins Kjarvals sem birst í tímartinu Arkitektúr og hönnun segir meðal annars:
„Sveinn leit dagsins ljós í Kaupmannahöfn 20. mars 1919. Foreldrar hans voru Tove Kjarval rithöfundur, fædd Merild og Jóhannes S. Kjarval listmálari. 1940 gekk Sveinn að eiga Guðrúnu Kjarval, fædd Hjörvar og varð þeim hjónum fimm barna auðið.
Hann nam húsgagnasmíði á smíðaverkstæði Jakobs Kjær í Kaupmannahöfn. Þá þegar þótti dönsk húsgagnahönnun, smíði og framleiðslutækni skara fram úr og verkstæðið þar sem Sveinn stundaði nám sitt var í fremstu röð.
Sveinn hélt til Íslands 1939 að námi loknu og setti á laggirnar eigin húsgagnavinnustofu, sem hann rak í nokkur ár, uns hann fluttist á ný til Kaupmannahafnar ásamt konu og börnum og settist aftur á skólabekk, í þetta sinn við nám í húsgagnahönnun í Kunsthaandværkerskolens Möbelskole. Meðal kennara hans voru ýmsir virtustu hönnuðir Dana, svo sem Hans Wegener, Finn Juhl og Börge Mogensen.
Að hönnunarnáminu loknu hélt Sveinn enn heim til Íslands og setti á laggirnar fyrstu teiknistofu sína. Fyrsta stóra verkefni hans var að hanna skápa, sýningarborð og hillur í hið nýja Þjóðminjasafn Íslands. Skömmu síðar hannaði hann Naustið innan og utanhúss ásamt öllum húsbúnaði veitingahússins. Margir húgagna- og innréttingahönnuðir þjóðarinnar hófu feril sinn á þessari teiknistofu Sveins. …
Með tímanum urðu verkefnín mörg og fjölgaði jafnt og þétt, þegar kom fram yfir miðjan sjötta áratuginn. Verslanir, einkaheimili, bókasöfn, veitingastaðir, kirkjur og menntaskólar voru meðal bygginga þar sem sjá mátti innréttingar og húsgögn, sem Sveinn hannaði - að ógleymdu sjálfu Alþingi og Landspítalanum. …
1970 fluttist Sveinn enn á ný til Danmerkur með konu og börnum. Þar hélt hann áfram starfi sínu við hönnun og smíði húsgagna. Innan tíðar færði hann svo út kvíarnar og í samvinnu við konu sína og dóttur Kolbrúnu og seinna tengdason sinn, Robin Lökken, kom hann á laggir leirkeravinnustofu og sýningarsal á Jótlandi. Sveinn Kjarval lést á Landspítalanum 10. febrúar 1981 og hvílir í Fossvogskirkjugarði.“