Snæuglan og stofuklukkan

„Þegar forsetinn hringdi taldi ég hana einu réttu gjöfina handa þjóðhöfðingja Íslands.“

Á efri hæð Bessastaða er hægt að sjá ýmsar gjafir sem hafa borist embætti forseta Íslands í gegnum tíðina. Einna mesta athygli þar vekja gjafir sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, færðu Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Íslands, í tengslum við leiðtogafundinn í Höfða árið 1986. Reagan gaf Vigdísi snæuglu og Gorbatsjov færði henni handmálaða stofuklukku.
Gjöf Ronalds Reagan var snæugla úr postulíni sem framleidd var af bandaríska postulínsfyrirtækinu E.M. Boehm Studios. Það ber nafn leirlistamannsins Edward Marshall Boehm en eftir andlát hans árið 1969 tók eiginkonan, Helen Boehm, við rekstrinum. Er á reiki hvort réttast sé að eigna sköpun gripa fyrirtækisins eftir þann tíma listamanninum Edward, eiginkonunni Helen eða listafólki sem starfaði undir hennar stjórn.
Í viðtali við Morgunblaðið haustið 1986 eignaði Helen sér heiðurinn af sköpun gjafarinnar frá Reagan: „Upphaflega mótaði ég snæugluna til þess að gefa hana út í takmörkuðu upplagi, en þegar forsetinn hringdi taldi ég hana einu réttu gjöfina handa þjóðhöfðingja Íslands.” Í viðtalinu kom einnig fram að Helen hyggðist framleiða 350 tölusett eintök af þessum sama grip og setja á markað.
Algengt var að Bandaríkjaforsetar færðu erlendum ríkjaleiðtogum gripi frá E.M. Boehm Studios að gjöf um og eftir miðja síðustu öld. Má til dæmis nefna að Richard Nixon færði Maó Zedong leirskúlptúrinn Friðarfuglinn (The Bird of Peace) úr smiðju fyrirtækisins þegar hann heimsótti Kína árið 1972. Ári síðar kom Nixon til Íslands og átti hér fund með Georges Pompidou Frakklandsforseta. Við það tækifæri færði Nixon Kristjáni Eldjárn, forseta Íslands, postulínsskúlptúr af fugli á grein sem líklega var einnig framleiddur af E.M. Boehm Studios. Gripurinn er til sýnis við hliðina á snæuglinni á efri hæð Bessastaðastofu.

Snæuglan og stofuklukkan sem Vigdís Finnbogadóttir fékk að gjöf í október 1986.
Starfslið Ronalds Reagans kvikmyndaði heimsókn hans til Íslands haustið 1986 og hafa varðveist skemmtilegar upptökur af því þegar Vigdís tók á móti honum á Keflavíkurflugvelli og bauð honum til samtals á Bessastöðum.
Sjá nánar.
Minna er vitað um stofuklukkuna sem Gorbatsjov hafði meðferðis til Bessastaða frá Sovétríkjunum. Gripurinn er úr kopar og viði. Klukkan sjálf stendur á handmáluðum svörtum stöpli og er miðjan á skífu klukkunnar einnig handmáluð. Þar má sjá dansandi menn og litríka kirkju en á stöplinum sitja menn í sleða sem dreginn er áfram af viljugum hestum. Neðst á stöplinum stendur orðið „Весна“ (Vesna), sem þýðir „vor“ á rússnesku. Það vísar væntanlega til framleiðanda gripsins.
Myndirnar eru málaðar í svonefndum Palekh-stíl (Палех) sem er rótgróin rússnesk listhefð sem á rætur að rekja til þorpsins Palekh, norðaustur af Moskvu. Þar störfuðu um aldir listamenn sem máluðu trúarlegar íkonamyndir en eftir rússnesku byltinguna 1917 minnkaði eftirspurn eftir þeim og þurftu listamennirnir að finna nýjan farveg fyrir kunnáttu sína. Þá urðu til þær Palekh-myndir sem staðurinn er þekktur fyrir nú. Grunnurinn er jafnan svartur en yfir hann eru málaðar fíngerðar myndir í sterkum rauðum, grænum, bláum og appelsínugulum tónum. Hestasleðar með dráttarklárum og minni úr rússneskum þjóðsögum eru algeng myndefni.
Í ávarpi sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti í hátíðarkvöldverði á Bessastöðum aldamótaárið 2000 túlkaði hann merkingu gjafanna tveggja svo: „Kannski var það táknrænt að gjöf Ronalds Reagans var stytta af uglu, fugli vísdóms og íhugunar og gjöf Mikhail Gorbatsjov var klukka, mælitæki tímans, hvort tveggja áminning um að nota á viturlegan hátt daga og ár sem okkur eru gefin.“

Ýmsar fleiri gjafir eru til sýnis á efri hæð Bessastaðastofu.
Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan hittust fyrst árið 1982 þegar Vigdís var í heimsókn í Bandaríkjunum. Einnig hafa varðveist áhugaverðar upptöku frá þeirri heimsókn.
Sjá nánar.
Í blaðaviðtölum sem tekin voru þegar Gorbatsjov lét af embætti árið 1991 og þegar Reagan lést árið 2004 rifjaði Vigdís Finnbogadóttir upp kynni sín af þessum tveimur mönnum. Þar kom meðal annars fram að þau Vigdís og Reagan náðu vel saman þar sem bæði höfðu tengsl við leiklistina, hún sem leikhússtjóri í Iðnó og hann sem kvikmyndaleikari í Hollywood.
„Hann hafði fjarska gaman af þessu og spurði mig hvaða áhrif það hefði haft á mig og hvort ég teldi það hafa komið mér til góða, og ég hélt það nú,“ sagði Vigdís í samtali við Morgunblaðið. „Ég sagði við hann að það væri víst enginn skóli til í heiminum þar sem hægt væri að stúdera að vera forseti. Ef það væri eitthvað, þá væri það í leikhúsinu, þar sem verið er að skilgreina frá morgni til kvölds, mannlífið og samfélagið, og mér finnst ég hafa haft mjög mikið gagn af því að skilja mannveruna betur, enda tel ég að forsetaembætti snúist yfirleitt um fólk. Þetta sagði ég við hann í fyrsta sinn sem við hittumst, og þetta þótti honum svo skemmtilegt að hann kom alltaf að þessu aftur, og kallaði mig kollega sinn frá fyrri tíð.“
Um heimsókn Gorbatsjovs og eiginkonu hans á Bessastaði haustið 1986 sagði Vigdís meðal annars:
„Þau komu bæði að Bessastöðum, Raísa Gorbatsjova og Míkhaíl Gorbatsjov og við sátum saman og skröfuðum góða stund. … Þá kom greinilega í ljós að þau bæði voru með framtíðardrauma, framtíðarsýn og mikinn metnað fyrir sitt heimasvæði í heiminum. … Mér finnst Míkhaíl Gorbatsjov vera alveg makalaus maður í samtíðinni og enginn vafi á að þessum stórbrotna stjórnmálamanni verður helgaður stór kafli í sögu síðasta áratugar tuttugustu aldarinnar. Hans nafn gleymist ekki, á hverju sem veltur þegar fram líða stundir. Ekki síst held ég að hann verði sögufrægur fyrir vammleysi sitt. Mér finnst að honum mikil eftirsjá því mér féll svo vel við hann. Eitt af því minnisstæðasta við hann er hlýjan og kímnin í augunum, það var alltaf mjög stutt í brosið. Hann var líka mjög einarður og einlægur hugsjónamaður.“