Heimsókn til Hornafjarðar

Myndasafn frá heimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og Björn Skúlason, maka forseta, til Hornafjarðar dagana 12.–13. mars 2025.

Hornafjörður er öflugt og vaxandi samfélag umlukið stórbrotinni náttúru við rætur Vatnajökuls. Forsetahjón flugu til Hornafjarðar að morgni 12. mars. Þar tók bæjarstjórn á móti forsetahjónum og kynnti þeim mannlífið og margvíslega uppbyggingu á svæðinu. Á öðrum degi heimsóknarinnar var farið í dreifbýli sveitarfélagsins. Dagurinn hófst við Hoffell. Þaðan var haldið í kúabúið Flatey á Mýrum. Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit og að Jökulsárlóni. Eftir hádegi lá leiðin að Hofgarði í Öræfum þar sem var efnt verður til kaffisamsætis með íbúum Öræfasveitar. .Ljósmyndir: EFÍ/Una Sighvatsdóttir.
12. mars 2025
13. mars 2025