Heimsókn til Vestmannaeyja

Myndasafn frá heimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og Björn Skúlasonar, maka forseta, til Vestmannaeyja dagana 8.–9. janúar 2026.

Vestmannaeyjar eru ein mikilvægasta verstöð landsins og nafntogaðar fyrir náttúrufegurð og blómlegt samfélag. Forsetahjón komu fljúgandi til Vestmannaeyja 8. janúar. Á flugvellinum tók bæjarstjórn á móti þeim. Síðdegis þennan fimmtudag og föstudaginn 9. janúar kynnti bæjarstjórnin fyrir forsetahjónum mannlífið, helstu stofnanir og atvinnulíf í Eyjum. Dagskránni lauk að kvöldi föstudagsins með þátttöku forsetahjóna í árlegri þrettándahátíð bæjarbúa. Ljósmyndir: Bjarni Þór Georgsson og EFÍ.
8. janúar 2025
9. janúar 2026