Skjaldarmerki og fáni
Forseti Íslands hefur eigið skjaldarmerki sem er meðal annars notað á bréfsefnum og orðuskjölum embættisins. Forsetinn hefur einnig sérstakan fána sem er meðal annars notaður á forsetasetrinu á Bessastöðum og á bifreið forseta.
Skjaldarmerki forseta Íslands skjöldur sem að lögun og lit er eins og skjöldurinn í skjaldarmerki Íslands en þar sem armar krossmarksins mætast er hvítur, ferhyrndur reitur og í honum eru skjaldarmerki Íslands og skjaldberar.
Fáni forseta Íslands er tjúgufáni, þ.e. þjóðfáninn klofinn að framan. Þar sem armar krossmarksins mætast á fánanum er skjaldarmerki Íslands og skjaldberar í hvítum, ferhyrndum reit.